Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 21:31 Martin Ödegaard gæti tekið þátt í úrslitaleiknum en þá þarf hann að sýna að hann sé leikfær á æfingu Arsenal á morgun. Getty/Mike Hewit Það er enn óljóst hvort Martin Ödegaard fyrirliði Arsenal snúi aftur þegar Arsenal mætir Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins á sunnudag. „
Við eigum æfingu á morgun, svo við skulum bara bíða og sjá,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, þegar hann var spurður um stöðu Ödegaards á blaðamannafundi á föstudag. Ödegaard hefur ekki spilað síðan hann kom inn á sem varamaður í þrettán mínútur í grannaslagssigrinum á Tottenham þann 22. febrúar. Á þriðjudag missti hann af sjötta leik sínum í röð með Arsenal gegn Leverkusen. Í föstum dálki sínum í leikskrá Lundúnafélagsins fyrir deildarleikinn gegn Everton um síðustu helgi skrifaði Norðmaðurinn um meiðslastöðu sína. „Ég er örvæntingarfullur að komast aftur inn á völlinn og spila eins fljótt og mögulegt er,“ stóð þar. „Það hefur verið erfitt fyrir mig með þessi hnémeiðsli undanfarið en ég legg mig allan fram við að komast aftur í form. Það mikilvægasta er að ná hundrað prósent bata og tryggja að ég geti hjálpað liðinu,“ hélt Ödegaard áfram. Norski landsliðsfyrirliðinn hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili og síðasta mánuðinn hefur hann glímt við hnémeiðsli. Eins og staðan er núna hefur hann misst af tíu af síðustu tólf leikjum Arsenal. Ståle Solbakken, landsliðsþjálfari Norðmanna, hefur verið skýr með það að hann hafi ekki áhyggjur af stöðunni en í nýlegu viðtali við Viaplay sagði hann nýlega að meiðsli Ødegaards væru ekki alvarleg. „Það mikilvægasta er að hann nái fullum bata og verði góður fyrir okkur í sumar. Fyrir okkur sem hugsum um HM er það engin katastrófa að hann fái pásu núna,“ sagði Solbakken en Norðmenn eru á leið á sitt fyrsta heimsmeistaramót í 28 ár. Leikur Arsenal og Manchester City verður sýndur beint á SÝN Sport Viaplay frá klukkan 16.00 á sunnudaginn. Mikel Arteta confirms Arsenal have no new injury concerns ahead of the Carabao Cup final, with Jurrien Timber and Martin Ødegaard both in contention to be included in Sunday’s squad, leaving Mikel Merino as the only absentee. 🙏 pic.twitter.com/vsr4gaYUF0— AFTV (@AFTVMedia) March 20, 2026
Enski boltinn Arsenal FC Manchester City Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Árni Gautur heiðraður af ÍA Íslenski boltinn Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Enski boltinn Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Enski boltinn Fleiri fréttir Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Sjá meira