Dramatísk endurkoma Stjörnunnar felldi Selfoss Valur Páll Eiríksson skrifar 21. mars 2026 15:34 Stjarnan náði makalausu jafntefli við Hauka og slapp þannig við fall. Vísir/Hulda Margrét Von Stjörnunnar um að halda sæti sínu í Olís-deild kvenna lifir eftir ótrúlegt jafntefli liðsins við Hauka að Ásvöllum. Lið Selfoss er fallið í næstefstu deild.
Ljóst var fyrir leikinn í Hafnarfirði að sigur Hauka myndi fella Stjörnuna sama hvað. Stjarnan og Selfoss voru jöfn að stigum á botninum fyrir leiki dagsins en Selfoss mætti ÍR í Breiðholti. Neðsta lið deildarinnar fellur um deild en það næstneðsta fer í umspil um áframhaldandi sæti. Selfoss var með innbyrðis viðureign á Stjörnuna og ljóst að Stjarnan þyrfti að fá fleiri stig en Selfyssingar til að komast upp í umsspilssætið. Selfoss átti í miklum vandræðum í Breiðholti og snemma ljóst að ÍR ynni þann leik. Honum lauk 33-20 fyrir ÍR og Selfyssingar þurftu þá að treysta á að Stjarnan tapaði fyrir Haukum. Lengi vel stefndi í Haukasigur á Stjörnunni en Haukakonur leiddu 17-11 í hálfleik. Mest höfðu Haukar komist sjö mörkum yfir en eftir hléið mætti allt annað Stjörnulið til leiks sem var sannarlega að berjast fyrir lífi sínu. Stjarnan hjó jafnt og þétt á forskot Hauka og þegar tíu mínútur voru eftir af hálfleiknum var staðan 23-22 fyrir Haukakonur. Stjarnan hafði því skorað 12 mörk gegn aðeins fimm á fyrstu tuttugu mínútum síðari hálfleiks. Stjörnunni tókst að jafna en Haukar svöruðu. Staðan 26-24 fyrir Hauka þegar tvær mínútur voru eftir. Sara Katrín Gunnarsdóttir minnkaði muninn í 26-25 og Stjarnan náði góðu stoppi í vörninni í kjölfarið. Gestirnir fóru svo upp í lokasóknina og þegar aðeins fjórar sekúndur voru eftir skoraði hin færeyska Inga Maria Roysdóttir jöfnunarmarkið sem tryggði Stjörnunni umspilssæti. Selfoss fellur því í næstefstu deild en von Stjörnunnar um áframhald í deild þeirra bestu lifir.
Stjarnan UMF Selfoss Olís-deild kvenna ÍR Haukar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira