Kristín Evrópumeistari og bætti tvö heimsmet Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2026 21:27 Kristín Þórhallsdóttir ljómaði á meðan að íslenski þjóðsöngurinn ómaði á Möltu í dag. EPF Kristín Þórhallsdóttir varð í dag Evrópumeistari í klassískum kraftlyftingum og setti um leið bæði heims- og Evrópumet.
Hin 42 ára gamla Kristín, sem er dýralæknir úr Borgarfirði, hafði áður orðið Evrópumeistari árið 2021 en hefur bætt sig enn frekar síðan þá og er nú aftur Evrópumeistari, í -84 kg þyngdarflokki. Kristín lyfti samtals 567,5 kg og hafði betur í afar spennandi keppni við hina þýsku Önnu Ieronimos sem lyfti 2,5 kg minna. Kristín hlaut tvenn gullverðlaun því auk þess að vinna samanlagt þá lyfti hún mest allra í hnébeygju (e. squat), eins og sjá má hér að neðan. Efstu þrettán keppendurnir á EM í klassískum kraftlyftingum, í -84 kg flokki kvenna. Kristín lyfti samtals 567,5 kg og vann titilinn.Youtube Í hnébeygjunni í dag byrjaði hún á 205 kg, lyfti næst 215 kg og endaði svo á að lyfta 225 kg. Það er nýtt heimsmet og Evrópumet í öldungaflokki 1. Í bekkpressunni byrjaði Kristín á 112,5 kg og reyndi svo tvívegis við 117,5 kg, sem tókst í seinni tilrauninni. Í þriðju og síðustu greininni, réttstöðulyftu, tókst Kristínu svo að lyfta mest 225 kg og setja annað heimsmet og Evrópumet í öldungaflokki 1. Kristín Þórhallsdóttir með gullverðlaunin sín á Möltu í dag.KRAFT Samanlagt lyfti Kristín því 567,5 kg, eða 7,5 kg meira en þegar hún varð Evrópumeistari í fyrsta sinn, fyrir fjórum árum.
Kraftlyftingar Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira