Rannsökuðu ekki nauðgun og báðu sakborning afsökunar Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2026 08:25 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hætti rannsókn á nauðgun en ríkissaksóknari skipaði henni að taka hana upp aftur árið 2021. Lögreglumaður bað sakborninginn afsökunar þegar hann var loks kallaður í skýrslutöku. Vísir/Vilhelm Starfshættir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru ámælisverðir þegar hún vanrækti að rannsaka nauðgun að mati eftirlitsnefndar. Einstaklingur sakaði lögreglumenn um að hafa vísvitandi spillt fyrir rannsókninni. Lögreglumaður bað sakborning afsökunar þegar hann var loks kallaður til skýrslutöku.
Takmarkaðar upplýsingar eru um málið og kvörtunina í ákvörðun sem nefnd um eftirlit með lögreglu tók 14. mars í fyrra*. Kvörtunin beindist að því að starfsmenn sem fóru með nauðgunarmál hafi viljandi eyðilagt rannsóknina. Lögreglumenn hafi haft upplýsingar um dyraverði sem voru við störf en ekki haldið rannsókn áfram þrátt fyrir það. Kvartandinn hélt því fram að ástæðan hefði verið sú að lögreglan hefði á sama tíma byggt upp mál vegna ætlaðra afbrota annars dyravarðanna. Ákvörðun eftirlitsnefndarinnar lá ekki fyrir fyrr en tæpum tveimur árum eftir að kvörtunin barst. Bað sakborninginn afsökunar Lögreglustjóri ákvað að hætta rannsókn málsins en ríkissaksóknari felldi þá ákvörðun úr gildi í mars árið 2021. Sá sem kvartaði til eftirlitsnefndarinnar gerði athugasemd við framkomu lögreglumanns þegar sakborningur var loks kallaður í skýrslutöku eftir að saksóknari gerði lögreglunni að rannsaka málið. Lögreglumaðurinn hafi beðið sakborninginn afsökunar á því að hafa þurft að kalla hann í skýrslutöku og sagt honum að „lögreglan hafi fengið þetta í hausinn frá ríkissaksóknara og [þurft] að klára örfá atriði“. Þá hefði lögreglumaðurinn ekki gert athugasemdi við að sakborningurinn óskaði eftir nafni og heimilisfangi kvartandans. Því hefði hann átt að taka sem hótun. Nefndin um eftirlit með lögreglu taldi ummæli starfsmanns lögreglu við skýrslutöku hafa verið óheppileg og ekki í samræmi við fagleg og vönduð vinnubrögð. Hún taldi þrátt fyrir það ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna þeirra. Í ákvörðun nefndarinnar er vísað til ummælanna við skýrslutöku „af kvartanda“. Ekki er ljóst hvort það sé misritun eða hvort kvartað hafi verið undan öðrum ummælum lögreglumanns við skýrslutöku af kvartanda sem er ekki getið að öðru leyti í ákvörðuninni. Tveggja ára dráttur á rannsókn Hins vegar taldi nefndin starfsmenn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa viðhaft ámælisverðar starfsaðferðir þegar embættið lét hjá líða að vinna að uppljóstrun málsins sem sé lögmælt hlutverk þess við upphaf rannsóknar. Þrátt fyrir að ríkissaksóknari hafi látið rannsaka málið eftir að lögreglustjóri ákvað að hætta rannsókn hafi verulegur dráttur orðið í málinu. Skýrslutökur af meintum sakborningi og vitnum hafi þannig ekki farið fram fyrr en rúmum tveimur árum eftir meint brot. Taldi nefndin mikilvægt að lögreglan færi yfir verklag sitt og mæti hvort þörf væri á úrbótum til þess að girða fyrir að sambærileg atvik endurtækju sig. *Upphaflega sagði ranglega í fréttinni að ákvörðun nefndarinnar hefði verið tekin á þessu ári. Hún var hins vegar tekin í fyrra og var áður birt í skjali með fleiri ákvörðunum á eldri vefsíðu nefndar um eftirlit með lögreglu. Ákvörðunin birtist stök á nýrri vefsíðu nefndarinnar á island.is nýlega.
Lögreglan Lögreglumál Stjórnsýsla Kynferðisofbeldi Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira