Ísraelar hyggjast hernema suðurhluta Líbanon Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2026 12:05 Aðgerðir Ísraela gegn Hezbollah hafa valdið gríðarlegri eyðileggingu í Líbanon og fjöldi íbúa er á vergangi. Nú virðist óvist að þeir muni geta snúið heim aftur á næstunni. Getty/Murat Sengul Stjórnvöld í Ísrael hyggjast taka yfir suðurhluta Líbanon að ánni Litani, það sem þau kalla „öryggissvæði“. Áin liggur í um 30 kílómetra fjarlægð frá landamærum Ísrael og Líbanon. Að sögn utanríkisráðherrans Israel Katz munu Ísraelar einnig stjórna þeim brúm yfir ána sem enn standa.
Hundruð þúsunda íbúa á svæðinu frá landamærunum og að Litani hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna árása Ísraelshers á skotmörk tengd Hezbollah. Katz segir þá ekki munu geta snúið aftur fyrr en öryggi íbúa í norðurhluta Ísrael hafi verið tryggt. Áhyggjur eru uppi í Líbanon um að Ísraelsmenn hyggist leggja svæðið undir sig en forsetinn Joseph Aoun sagði árás Ísraels á Qasmiyeh-brúna, sem tengir suðurhluta Líbanon við restina af landinu, „forleik að innrás“. Þá vakti það mikla athygli þegar Bezalel Smotrich, fjármálaráðherra Ísrael, sagði í gær að Ísraelar ættu að færa landamæri sína upp að Litani-á. Israel should extend its border with Lebanon up to the Litani River, deep inside the country's south, Israel's finance minister said, as Israeli troops bombed bridges and destroyed homes in the area in an escalating military assault https://t.co/Yu2L88ZLMs pic.twitter.com/ktJaE7L814— Reuters (@Reuters) March 23, 2026 „Yfirstandandi átökum í Líbanon verður að ljúka með róttækum breytingum, til viðbótar við tortímingu hryðjuverkahópsins Hezbollah,“ sagði hann þegar hann ávarpaði skoðanabræður sína á þinginu. „Litani verður að verða ný landamörk okkar við ríkið Líbanon, alveg eins og „gula línan“ í Gasa og eins og öryggissvæðið og tindurinn á Hermon í Sýrlandi.“ Smotrich sagði þá stöðu ekki mega koma upp aftur að óvinurinn lægi upp við varnartálmana. Hann yrði hrakinn á brott og „dauðhreinsuðum“ öryggissvæðum komið á milli óvinarins og borgara Ísrael. Þess ber að geta að Katz sagði sjálfur fyrr í mánuðinum að íbúar Líbanon myndu mögulega verða af landsvæði ef þarlend stjórnvöld afvopnuðu ekki Hezbollah.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Líbanon Hernaður Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira