Aðalsteinn Lúther: „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. mars 2026 16:27 Aðalsteinn Leifsson tók upp millinafnið Lúther fyrir nokkrum árum sem virðingarvott við nafna sinn og afa, Aðalstein Lúther Indriðason. Vísir/Arnar Aðalsteinn Leifsson, guðfræðinemi og fyrrverandi ríkissáttasemjari, tók upp millinafnið Lúther fyrir ekki svo löngu síðan. Nafnabreytingin tengist ekkert guðfræðináminu sem Aðalsteinn byrjaði nýverið í heldur er það virðingavottur við afa hans, Aðalstein Lúther Indriðason.
Eftir að hafa lútið í lægri haldi fyrir Björgu Magnúsdóttur í oddvitaslag Viðreisnar í borginni bárust þær fregnir af Aðalsteini að hann væri hættur sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og væri byrjaður í guðfræðinámi. Blaðamanni barst síðan til eyrna í vikunni að Aðalsteinn hefði tekið upp millinafnið Lúther. Nafnabreytingin virtist ný því ekki var að sjá nafnið í nýlegum fréttaflutningi af prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík né á Fésbókarsíðu hans. Hins vegar mátti sjá nafnið á Instagram-síðu Aðalsteins. Blaðamaður var því fljótur að tengja Lúthers-nafnið við guðfræðina. Það reyndist þó ekki rétt og nafnabreytingin ekki heldur ný af nálinni þó lítið hefði farið fyrir henni. „Afi minn hét Aðalsteinn Lúther og ég er skírður í höfuðið á honum og mér fannst alltaf að miðjunafnið vantaði líka þannig ég tók það upp fyrir nokkru síðan,“ sagði Aðalsteinn í samtali við fréttastofu. Aðalsteinn Leifsson og tíkin Kría á góðri stundu.Vísir/Vilhelm „Þetta er ekki einhver trúarofsi tengdur guðfræðinámi,“ segir Aðalsteinn hlæjandi og bætir við: „Þetta á sér eðilegar skýringar, við vorum mjög nánir, ég og afi og mér þykir vænt um að hafa nafnið hans og langaði að hafa allt nafnið.“ „Ég ætlaði lengi að gera þetta, dró það og svo fyrir einhverju síðan þá var þetta rosaeinfalt og gerðist bara á fimm mínútum,“ segir Aðalsteinn. Samkvæmt Íslendingabók hafa 147 einstaklingar borið nafnið Lúther (eða afbrigði þess Lúter og Luther) hérlendis frá 19. öld og þar af eru um sextíu núlifandi. Fyrsti Lútherinn á Íslandi var Jóhann Lúther Sveinbjörnsson, aðstoðarprestur í Hrafnagili, sem fæddist 1854 og lést 1912, og sá yngsti er fæddur 2024. Sjómaður og vélstjóri frá Patreksfirði „Hann var fæddur á Patreksfirði og þetta var frekar algengt skyldist mér. Ég sá alltaf bara Aðalsteinn L. þannig ég vissi ekki fyrir hvað það stóð þegar ég var unglingur. Svo spurði ég hann og þetta var svolítið algengt fyrir vestan sagði hann mér á sínum tíma,“ segir Aðalsteinn. „Hann var mjög fullorðinn þegar hann átti pabba þannig hann var 93 ára þegar hann dó fyrir löngu síðan, hann var fæddur 1906. Þetta tengist ekkert guðfræðinni bara virðingarvottur við hann afa gamla,“ segir Aðalsteinn um nafna sinn Aðalstein Lúther Indriðason. Brot úr minningargrein Aðalsteins Lúthers í Morgunblaðinu 1998. Á vef Heimaslóðar, vef sem fjallar um ýmiss konar fróðleik tengdan Vestmannaeyjum má lesa um ævi og störf Aðalsteins Lúthers. Þar kemur fram að Aðalsteinn hafi fæðst 10. október 1906, unnið sem vinnumaður í Dufansdal í Arnarfirði 1922 og 1923 og lokið vélstjóraprófi í Stykkishólmi 1925. Hann vann sem sjómaður og vélstjóri, fluttist til Eyja síðla á fjórða áratugnum og var lengst af vélstjóri hjá Ársæli Sveinssyni. Hann eignaðist synina Leif Ársæl og Aðalstein Ólaf með eiginkonu sinni Stefaníu Jóhannsdóttur, 1943 og 1945 og fluttu þau til Reykjavíkur 1946. Aðalsteinn vann við vélgæslu í Reykjavík, starfaði lengi hjá verslun Gísla J. Johnsen og í Stillingu hf og vann síðustu ár starfsferilsins sem gangavörður í Vogaskóla.
Mannanöfn Vestmannaeyjar Vesturbyggð Trúmál Tímamót Mest lesið James Burrows látinn Bíó og sjónvarp „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Lífið Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum Lífið Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Lífið Stofnhús með opið hús í Hnjúkamóa í Þorlákshöfn Lífið samstarf Laufey Lín er mætt til Springfield Bíó og sjónvarp Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Lífið Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Tónlist Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Lífið Alþjóðleg bragðáhrif verða sífellt vinsælli Lífið samstarf Fleiri fréttir Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Hvað veistu um... HM karla í fótbolta? Flúði Pútín og þurfti svo að glíma við MAST Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Sjá meira