Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Freyja Þórisdóttir skrifar 31. mars 2026 17:28 Bindi Irwin, dóttir Steve Irwin, opnaði sig í færslu á Instagram um reynslu sína í kjölfar þess að hún greindist með Endómetríósu árið 2023. Síðan þá hefur hún þurft að gangast undir fjölmargar aðgerðir. Skjáskot/Instagram Bindi Irwin opnaði sig nú á dögunum um erfiða baráttu sem hún hefur háð síðustu þrjú ár síðan hún greindist með endómetríósu. Margir þekkja eflaust ættarnafn hennar en Steve Irwin, faðir Bindi, var ástralskur náttúruverndarsinni og dýragarðsvörður. Bindi hefur verið í sviðsljósinu stóran hluta ævi sinnar en þá sérstaklega eftir að faðir hennar lést á hörmulegan hátt fyrir 20 árum. Steve lést við tökur á heimildarmyndinni „Ocean's Deadliest“ í Ástralíu eftir að stingskata stakk hann í hjartastað. Steve Irwin lést árið 2006, hann lét eftir sig son sinn Robert og dóttur sína Bindi. Ekkja hans, Terri Irwin, hefur haldið áfram að breiða út boðskap náttúruverndar ásamt börnum þeirra.MYND/AP En Bindi, sem er tuttugu og sjö ára gömul, deildi í morgun myndum af sér á Instagram þar sem hún liggur í sjúkrarúmi en með þeim fylgir meðal annars lýsing á þeim aðgerðum sem hún hefur þurft að gangast undir síðustu ár. Þar segir hún einnig frá því að hún hafi fundið fyrir miklum sársauka í mörg ár án þess að fá greiningu á sjúkdómnum. Þar af leiðandi hafi hún upplifað sig veikburða og óörugga en hún hvetur fólk í svipuðum sporum til þess að leita svara. Á síðustu þremur árum hafa yfir 50 legslímuflakksmeinsemdir verið skornar úr líkama mínum. Skemmd í eggjastokki sem festi hann við síðuna var fjarlægð. Botnlangataka og kviðslitsaðgerð. Ég hef fundið fyrir ólýsanlegum, óumflýjanlegum sársauka. Reynt að halda ósýnilegum veikindum mínum fyrir sjálfa mig eftir að læknar sögðu mér að þetta væri bara „hluti af því að vera kona“. Ég var 10 ár án greiningar. Sem unglingur og ung kona fannst mér ég vera veikburða og afar óörugg. Ég var föst í eigin líkama. Mars er vitundarvakningarmánuður um legslímuflakk. Þegar þessi mánuður er á enda hvet ég alla til að muna eftir þessum ósýnilega sjúkdómi hvern einasta dag. Að sýna þeim milljónum sem þjást stuðning, samkennd og mildi. Það er okkar allra að auka vitund, ekki bara um legslímuflakk heldur um heilsu kvenna í heild sinni. Enginn á skilið að þjást í hljóði. Ef þú finnur fyrir sársauka, þá verkjar mig í hjartað fyrir þína hönd. Ég trúi þér. Vinsamlegast leitaðu svara. Og ekki gefast upp á sjálfri þér. Ég veit hversu erfitt það getur verið. Marsmánuður er, líkt og Bindi segir, tileinkaður þeim sem þjást af endómetríósu en fyrr í mars ræddi fréttastofa við Jón Ívar Einarsson, sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum, um mögulega nýja greiningaraðferð. Einnig var rætt við Önnu Margréti Hrólfsdóttur, sem hefur sinnt starfi framkvæmdastjóra Endósamtakanna síðan haustið 2023, en þau halda meðal annars utan um fyrrnefndan Endómars. „Allt sem einfaldar ferlið við að fá greiningu og aðstoð verður stór mál fyrir okkar hóp, aðgerð er risastórt inngrip, oft er sjúkdómurinn meðhöndlaður án þess að fara í uppskurð en það gefur svo mikla ró að vita fyrir víst að maður sé með endó,“ sagði hún í samtali við Vísi. Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira
Bindi hefur verið í sviðsljósinu stóran hluta ævi sinnar en þá sérstaklega eftir að faðir hennar lést á hörmulegan hátt fyrir 20 árum. Steve lést við tökur á heimildarmyndinni „Ocean's Deadliest“ í Ástralíu eftir að stingskata stakk hann í hjartastað. Steve Irwin lést árið 2006, hann lét eftir sig son sinn Robert og dóttur sína Bindi. Ekkja hans, Terri Irwin, hefur haldið áfram að breiða út boðskap náttúruverndar ásamt börnum þeirra.MYND/AP En Bindi, sem er tuttugu og sjö ára gömul, deildi í morgun myndum af sér á Instagram þar sem hún liggur í sjúkrarúmi en með þeim fylgir meðal annars lýsing á þeim aðgerðum sem hún hefur þurft að gangast undir síðustu ár. Þar segir hún einnig frá því að hún hafi fundið fyrir miklum sársauka í mörg ár án þess að fá greiningu á sjúkdómnum. Þar af leiðandi hafi hún upplifað sig veikburða og óörugga en hún hvetur fólk í svipuðum sporum til þess að leita svara. Á síðustu þremur árum hafa yfir 50 legslímuflakksmeinsemdir verið skornar úr líkama mínum. Skemmd í eggjastokki sem festi hann við síðuna var fjarlægð. Botnlangataka og kviðslitsaðgerð. Ég hef fundið fyrir ólýsanlegum, óumflýjanlegum sársauka. Reynt að halda ósýnilegum veikindum mínum fyrir sjálfa mig eftir að læknar sögðu mér að þetta væri bara „hluti af því að vera kona“. Ég var 10 ár án greiningar. Sem unglingur og ung kona fannst mér ég vera veikburða og afar óörugg. Ég var föst í eigin líkama. Mars er vitundarvakningarmánuður um legslímuflakk. Þegar þessi mánuður er á enda hvet ég alla til að muna eftir þessum ósýnilega sjúkdómi hvern einasta dag. Að sýna þeim milljónum sem þjást stuðning, samkennd og mildi. Það er okkar allra að auka vitund, ekki bara um legslímuflakk heldur um heilsu kvenna í heild sinni. Enginn á skilið að þjást í hljóði. Ef þú finnur fyrir sársauka, þá verkjar mig í hjartað fyrir þína hönd. Ég trúi þér. Vinsamlegast leitaðu svara. Og ekki gefast upp á sjálfri þér. Ég veit hversu erfitt það getur verið. Marsmánuður er, líkt og Bindi segir, tileinkaður þeim sem þjást af endómetríósu en fyrr í mars ræddi fréttastofa við Jón Ívar Einarsson, sérfræðing í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum, um mögulega nýja greiningaraðferð. Einnig var rætt við Önnu Margréti Hrólfsdóttur, sem hefur sinnt starfi framkvæmdastjóra Endósamtakanna síðan haustið 2023, en þau halda meðal annars utan um fyrrnefndan Endómars. „Allt sem einfaldar ferlið við að fá greiningu og aðstoð verður stór mál fyrir okkar hóp, aðgerð er risastórt inngrip, oft er sjúkdómurinn meðhöndlaður án þess að fara í uppskurð en það gefur svo mikla ró að vita fyrir víst að maður sé með endó,“ sagði hún í samtali við Vísi.
Á síðustu þremur árum hafa yfir 50 legslímuflakksmeinsemdir verið skornar úr líkama mínum. Skemmd í eggjastokki sem festi hann við síðuna var fjarlægð. Botnlangataka og kviðslitsaðgerð. Ég hef fundið fyrir ólýsanlegum, óumflýjanlegum sársauka. Reynt að halda ósýnilegum veikindum mínum fyrir sjálfa mig eftir að læknar sögðu mér að þetta væri bara „hluti af því að vera kona“. Ég var 10 ár án greiningar. Sem unglingur og ung kona fannst mér ég vera veikburða og afar óörugg. Ég var föst í eigin líkama. Mars er vitundarvakningarmánuður um legslímuflakk. Þegar þessi mánuður er á enda hvet ég alla til að muna eftir þessum ósýnilega sjúkdómi hvern einasta dag. Að sýna þeim milljónum sem þjást stuðning, samkennd og mildi. Það er okkar allra að auka vitund, ekki bara um legslímuflakk heldur um heilsu kvenna í heild sinni. Enginn á skilið að þjást í hljóði. Ef þú finnur fyrir sársauka, þá verkjar mig í hjartað fyrir þína hönd. Ég trúi þér. Vinsamlegast leitaðu svara. Og ekki gefast upp á sjálfri þér. Ég veit hversu erfitt það getur verið.
Heilbrigðismál Kvenheilsa Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira