Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 1. apríl 2026 14:00 Þeir sem ná að skila skráningu fyrir miðnætti fá ekki tuttugu þúsund króna vanskráningargjald. Nú eru síðustu forvöð að skrá kílómetrastöðu ökutækja því eftir daginn í dag munu þeir sem ekki hafa skráð stöðuna fá tuttugu þúsund króna vanskráningargjald. Sem stendur eiga eigendur fimm þúsund ökutækja enn eftir að senda sína stöðu inn.
Frá fyrsta janúar þessa árs hefur þurft að greiða kílómetragjald af öllum ökutækjum óháð orkugjafa en gjaldið ræðst af þyngd ökutækis. Landsmenn virðast enn vera að venja sig við nýtt fyrirkomulag gjaldtöku því ekki hafa allir náð að senda inn kílómetrastöðu. Ævar Ísberg er starfsmaður Skattsins. „Það sem gerist eftir daginn í dag er að þeir sem hafa ekki skráð akstursstöðu á gjaldskyldum ökutækjum frá upphafi árs 2025 munu fá lagt á sig svokallað vanskráningargjald og jafnframt vera stefnt á skoðunarstöð til að skrá rétta stöðu.“ Hefur fólk svigrúm út daginn í dag til að skila inn skráningu kílómetrastöðu eða er fresturinn liðinn? „Nei, við lítum svo á að skráningar sem berast í dag berist tímanlega.“En hversu margir eiga eftir að skila inn skráningu?„Þetta eru svona tæplega fimm þúsund ökutæki sem vantar skráningu á.“„Þetta eru í heildina svona um það bil þrjú hundruð þúsund ökutæki sem eru undir þannig að þetta er ekki stór hluti en fimm þúsund er samt alveg ágætlega stór hópur.“Sumum vex þetta verkefni í augum og koma sér einhverra hluta vegna ekki í að skrá stöðuna. Ævar var beðinn um að gefa góð ráð.„Einfaldast er að skrá sig inn á island.is og ég held þetta blasi bara við um leið og þú skráir þig inn. Leiðin til að skrá stöðuna. Ef þú treystir þér ekki til þess þá geturðu alltaf mætt á skoðunarstöð og beðið þá um að skrá þetta fyrir þig,“ sagði Ævar Ísberg starfsmaður hjá Skattinum.
Skattar, tollar og gjöld Kílómetragjald Bílar Tengdar fréttir Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Kílómetragjaldið hefur verið áberandi í samfélagsumræðunni undanfarið en í morgun var undirskriftasöfnun fyrir afnámi þess hrint af stað. Fjöldi manns hefur þegar skrifað undir listann. 30. mars 2026 17:20 Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Í langflestum tilvikum hafa eigendur bíla fengið rétta bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds í samræmi við áætlaðan meðalakstur en ágallar í hugbúnaði leiddi til þess að afmarkaður hópur fékk ekki rétta greiðsluseðla. 22. mars 2026 13:55 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Sjá meira
Mörg þúsund manns hafa skrifað undir afnám kílómetragjaldsins Kílómetragjaldið hefur verið áberandi í samfélagsumræðunni undanfarið en í morgun var undirskriftasöfnun fyrir afnámi þess hrint af stað. Fjöldi manns hefur þegar skrifað undir listann. 30. mars 2026 17:20
Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Í langflestum tilvikum hafa eigendur bíla fengið rétta bráðabirgðagreiðslu kílómetragjalds í samræmi við áætlaðan meðalakstur en ágallar í hugbúnaði leiddi til þess að afmarkaður hópur fékk ekki rétta greiðsluseðla. 22. mars 2026 13:55