Álftanes – ný byggð á flóðasvæði Einar Sveinbjörnsson skrifar 3. apríl 2026 08:00 Garðabær hefur í tveimur áföngum frá 2019 kynnt skipulag á Álftanesi á svokölluðu Norðurnesi, gegnt Bessastöðum. Meginatriði þessa skipulags er annars vegar nýr golfvöllur og hins vegar ný íbúðabyggð með sérbýli. Þarna er fyrir dálítil íbúðabyggð frá því fyrir um 40-50 árum við Blikastíg og Fálkastíg, auk stakstæðra húsa í kring um gömlu höfuðbólin, eins og Breiðabólstaða. Nesið er lágt þarna og ágangur sjávar hefur verið ógn um langt skeið. Húsaþyrpingin á Breiðabólsstöðum og Grund standa á dálítilli hæð og nýrri einbýlishús við Fálkastíg heldur hærra á lágum melhól. Annars er landið þarna víða í 2 – 3 m hæð yfir skilgreindu sjávarmáli. Fyrir 70 til 80 árum var farið að huga að skipulegum flóðavörnum. Þarna eru nú 5 metra háir sjóvarnargarðar. Þegar vestan aldan utan af Faxaflóa brotnar af miklu afli, koma iðulega skörð í garðana. Um þessar mundir standa einmitt yfir lagfæringar af hálfu Vegagerðarinnar sem annast sjóvarnir á lágsvæðum við strendur landsins. Breyting var gerð á aðalskipulagi fyrir nokkrum árum til að koma fyrir 9 holu golfvelli við Bessastaðatjörn, ásamt golfskála og nokkrum tugum einbýlishúsalóða. Deiliskipulag var þó ekki auglýst þá. Nú vill Garðabær bæta enn við lóðum undir íbúðarhús og tillaga sem nú er til umfjöllunar gerir ráð fyrir 154-157 íbúðum í sérbýli. Á kynningarfundi Garðabæjar í janúar var jafnframt sýnd tillaga að deiliskipulagi, með staðsetningu gatna og lóða [1]. Af því að svæðið stendur allt lágt, er áskilið að undir húsin verði púkkað með möl og að gólfkótinn verði að lágmarki 5,2 m. Það breytir því hins vegar ekki að þetta er flóðasvæði, þó húsin komi sum til með að standa á yfir 3 metra háum malarbing. Það er athyglisvert að í fjölmörgum umsögnum frá aðilum um aðalskipulagsbreytinguna nú í febrúar, skuli aðeins Heilbrigðiseftirlitið benda réttilega á að skipulagssvæðið sé á skilgreindu flóðasvæði [2]. Það er eins og menn átti sig ekki á ógninni. Í kaflanum um náttúrúvá í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, bls. 104 [3] segir: „Á Álftanesi eru sjóvarnagarðar með ströndinni, en þeir eru fyrst og fremst til varnar landbroti og minni háttar flóðum. Sjávarflóð eru annars vegar aftakaflóð með lága endurkomutíðni og hins vegar minni flóð með há endurkomutíðni. Lögð er áhersla á að verjast minni flóðum með háa endurkomutíðni.“ Og síðar í sama kafla: „Hætta á sjávarflóðum og kostnaður og umhverfisáhrif þess að verja nýja byggð gefur tilefni til þess að endurmeta hluta þeirra landnotkunarreita sem skilgreindir hafa verið á Álftanesi. Afmörkun þeirra er ekki breytt, en þegar kemur að gerð deiliskipulags og framkvæmdum skal taka mið af hættumati.“ Það er þessi síðasta setning sem skiptir mestu máli, því deiliskipulagsvinnan á Norðurnesinu er eftir. Þá fyrst má eiga von á hættumati. Vegna hættu sem stafar af sjávarflóðum þá er Hafnadeild Vegagerðinnar umsagnaraðili í skipulagi lágsvæða. Skipulagasstofnun á líka eftir að gefa lögbundið álit. 3 meiriháttar flóð síðustu 100 árin Á síðustu 100 árum skipta minni flóð tugum, en það hafa orðið þrjú sjávarflóð á Álftanesi, sem kalla má meiriháttar. Ég vil ekki nota orðið aftakaflóð. Þau voru: 25.september 1953, 16. febrúar 1957 og 6. febrúar 1970. Hér eru frásagnir frásagnir úr blöðum. „Milli kl. sex og sjö í gærmorgun vaknaði fólk á mörgum bæjum á Álftanesi við mikinn brimgný. Stórstraumur var og hvassviðri og sjógangur af vestri. Flæddi sjórinn mörg hundruð metra á land upp og bar með sér sand og möl. Á a.m.k. þremur bæjum varð allmikið tjón á túnum og engjum af þessum orsökum. Morgunblaðið fékk þessar upplýsingar í gærkvöldi hjá Sveini Erlendssyni hreppstjóra Bessastaðahrepps, en hann býr á Breiðabólsstöðum á Álftanesi. Kvað bann sjó hafa gengið upp að bæjardyrum á jörð sinni. Nýi varnargarðurinn, sem gerður hefur verið norðan til á nesinu bilaði þó ekki og forðaði það stórskemmdum. Hins vegar mun hafa brotnað skarð í varnargarðinn vestan til á Álftanesi, norður af Gesthúsum. Sunnan til á því, hjá Hliðsnesi gekk sjór einnig langt á land upp. Var stórt landflæmi þar undir sjó í gærmorgun. Flóðið sópaði einnig burtu löngum kafla af veginum milli Akrakots og Landakots að Breiðabólsstöðum. Var sú leið því með öllu ófær í gær. Eitthvað var í gær byrjað að gera við varnargarðinn, sem bilaði. Á forsetasetrinu á Bessastöðum urðu engar skemmdir. Flóð þetta er talið eitt hið mesta, sem menn muna á Álftanesi.“ (Morgunblaðið 26. sept. 1953). „Hamfarir á Álftanesi. Hundruð skepna drukknuðu í morgun, er sjórinn braut varnargarða og flæddi inn í gripahúsin að Grund á Álftanesi. Níu kúm varð bjargað illa á sig komnum, en bóndinn, Sveinn Erlendsson, hreppstjóri taldi, að það fé, sem drukknaði, skipti tugum og hænsnin hundruðum. Öll útihús á Grund eru umflotin vatni og jakar og grjót er eins og hráviði út um allt tún. Sjórinn náði þó ekki að flæða inn í íbúðarhúsið, sem stendur á hæð….. Vegurinn heim að bænum er alveg horfinn síðustu 600-700 metrana, og þar er bara stórgrýti.“ (Tíminn, 8. feb. 1970). Taka verður tillit til hækkandi sjávarstöðu Með hækkandi sjávarstöðu vegna hnattrænnar hlýnuna eykst hætta á sjávarflóðum. Svokallað fríborð sjóvarna minnkar, en með hækkandi sjávarstöðu kemst hærri alda inn á grynningar framan við sem eykur ágjöf og þar með flóðahættu. Ölduáhlaðandinn til viðbótar sjávarhæðinni getur orðið verulegur á utanverðu Álftanesi. Í samantekt Sigurðar Sigurðarsonar strandverkfræðings hjá Vegagerðinni frá 2018, Lágsvæði - viðmiðunarreglur fyrir landhæð [4], er bent á að út frá tíðnigreiningu flóðahæða í Reykjavík megi gera ráð fyrir að flóð sem við núverandi afstöðu lands og sjávar reiknast með 100- 200 ára endurkomutíma, muni hafa um 2 ára endurkomutíma þegar sjávarhæð hefur hækkað um 30 sm. Í glænýrri samantekt Veðurstofunnar; Mat á sjávarstöðuhækkun og útbreiðslu óveðursflóða [5], er því spáð að gefnum forsendum um hlýnun loftslags að sjávarborð við Álftanes verði um 45 sm hærra árið 2100 samanborið við tímabilið 1995-2014. Ég tel nokkuð víst að ekkert verði af þessum skipulagsbreytingum á Norðurnesinu, utan þess að golfvöllur getur þrifist á flóðasvæði. Nema menn vitanlega neiti að horfast í augu við náttúruvánna og aðsteðjandi ógn. Jú við getum vissulega komið við rándýrum „hollenskum“ flóðavörnum á kostnað ríkisins, til að verja byggðina. En Garðabæar er ekki í neinni landauð, nóg er af góðu byggingalandi sem stendur hærra - meira að segja á Álftanesi. Höfundur er veðurfræðingur og á árum áður bæjarfulltrúi í Garðabæ. [1] https://skipulagsgatt.is/files/4d381774-0e6c-471d-b945-6d10ded5f401 [2] https://skipulagsgatt.is/files/09f34656-8397-42d1-a095-119149569605 [3] https://www.gardabaer.is/media/file/garadalskipulagbok22screen.pdf [4] https://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Files/lagsvaede_vidmidunarreglur_2018/$file/L%C3%A1gsv%C3%A6%C3%B0i-vi%C3%B0mi%C3%B0unarreglur-%C3%9Atg%C3%A1fa%20A-04%202018.pdf [5] https://www.vedur.is/media/vedurstofan/utgafa/Sjavarflodaskyrsla_framhald_20251217.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Garðabær Skipulag Umhverfismál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Skoðun Af hverju eru íslenskir sprotar skráðir í Delaware? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Járn í járn Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun ESB margfaldar áhrif smáríkja: Dæmi frá Kýpur Dominic Scott skrifar Skoðun Segjum JÁ til að styrkja frelsi okkar og fullveldi Þorkell Helgason skrifar Skoðun Nemendur okkar eiga meira skilið en tölu Fiona Oliver,Yrsa Rós Brynjudóttir skrifar Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar þegar borgin sparar? Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Fjölbreyttar þarfir kalla á fjölbreytta fagþekkingu Ulrike Schubert skrifar Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Sjá meira
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar
Skoðun Krónan er ventillinn sem heldur aftur af íslensku atvinnulífi Óðinn Freyr Baldursson skrifar
Skoðun Enn einn landsbyggðarskatturinn á íbúa Austurlands Dagmar Ýr Stefánsdóttir,Kristín Dröfn Halldórsdóttir skrifar
Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson Skoðun