Stóra boxkvöldinu í Gamla bíói slegið á frest Sindri Sverrisson skrifar 2. apríl 2026 22:06 Kolbeinn Kristinsson er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli í hnefaleikum. Visir/Bjarni Bið verður á því að fyrsta atvinnumannakvöldið í hnefaleikum verði haldið á Íslandi því búið er að fresta veislunni sem fram átti að fara í Gamla bíói eftir rúma viku.
Kolbeinn Kristinsson átti loksins að fá að stíga á svið á heimavelli, þrátt fyrir að margra mati úrelt bann við atvinnumannahnefaleikum hér á landi, þann 10. apríl. Þar átti hann að mæta Austurríkismanninum Sasa Milenkovic í tólf lotu aðalbardaga kvöldsins. Viðburðinum hefur hins vegar verið frestað og er það vegna hnémeiðsla Kolbeins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nordic Ring Promotions sem stendur á bakvið viðburðinn. „Þótt þetta séu vonbrigði fyrir alla sem að málinu koma er það forgangsatriði að Kolbeinn fái svigrúm til að ná sér að fullu og snúa heill aftur í hringinn,“ segir í tilkynningunni. Þar kemur jafnframt fram að fljótlega komi upplýsingar um nýja dagsetningu og ljóst að menn eru ekki af baki dottnir. Var fullur sjálfstrausts og staðráðinn í að ná rothöggi Auk Kolbeins áttu fleiri atvinnumenn okkar Íslendinga að berjast á kvöldinu. Þeirra á meðal eru Valgerður Guðsteinsdóttir og Emin Kadri sem nú munu líkt og aðrir þurfa að bíða eitthvað lengur eftir stóru stundinni. Fyrir mánuði síðan var Kolbeinn í viðtali við Vísi og kvaðst þá í toppformi og tilbúinn að sýna sínar bestu hliðar á heimavelli. „Maður er bara fullur sjálfstrausts. Ég er búinn að sjá það fyrir mér að ég sé að fara rota hann hérna fyrir framan alla og húsið tryllist. Ég er búinn að sjá það fyrir mér þúsund sinnum. Maður er búinn að fara um allan heiminn, verða betri í sínu fagi. Svo kemur maður heim og sýnir öllum hversu góður maður er orðinn. Þetta er smá útskriftarveisla,“ sagði Kolbeinn í síðasta mánuði, áður en ljóst varð að fresta þyrfti veislunni vegna hnémeiðslanna.
Box Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Fleiri fréttir Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Verstappen skrifaði undir nýjan samning Áfram ofsótt og eltihrellirinn ákærður að nýju Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Sjá meira