Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 3. apríl 2026 12:10 Smáríkið, nýliði í áfengissölu á Akureyri, keypti samtals tvö þúsund páskaegg handa framlínustarfsfólki í bænum. Facebook/Tryggvi Páll Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum fara fram á að starfsfólk Sjúkrahússins á Akureyri skili páskaeggjum sem það fékk að gjöf frá Smáríkinu, sem opnaði í bænum í vikunni. Forstjóri sjúkrahússins segist hingað til hafa tekið við öllum gjöfum og ekki gert upp á milli gefenda. Verkferlar verði þó skoðaðir.
Árni Guðmundsson, formaður Foreldrasamtaka gegn áfengisauglýsingum, sendi Erlu Björnsdóttur, settum forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, bréf þar sem hann krafðist þess að 1.100 páskaeggjum sem sjúkrahúsinu barst frá Smáríkinu yrði skilað. Í bréfinu sagði hann meðal annars alvarlegt mál að heilbrigðisstofnun taki við gjöf frá fyrirtæki sem starfi af einbeittum brotavilja og gangi gegn öllum markmiðum heilbrigðiskerfisins. Þá bendir hann á að fyrirtækið sæti ákæru fyrir ólöglega áfengissölu. Facebook-færslu Sjúkrahússins á Akureyri um gjöfina var breytt en í seinni útgáfu er Smáríkisins ekki getið.Facebook Árni segir að Smáríkið starfi á skjön við lög og öll markmið heilbrigðiskerfisins. Því sé það „hvítþvottur“ á brotastarfsemi að taka við gjöf frá slíkum fyrirtækjum og birta þakkarfærslu þess efnis. Nánar má lesa um bréf Árna í frétt Akureyri.net um málið. Greint var frá því í fyrra að framkvæmdastjóri Icelandic Trading Company b.v, sem rekur Smáríkið, hefði verið ákærður vegna meints brots á ákvæði áfengislaga um einkarétt ríkisins til smásölu áfengis. Gera ekki upp á milli Erla Björnsdóttir segir í samtali við fréttastofu að sjúkrahúsinu berist ýmis konar gjafir frá einstaklingum og fyrirtækjum í formi matvæla, svo sem páskaeggja, bakkelsis og pítsu, og verðmæta, eins og til dæmis málverka. Erla Björnsdóttir er settur forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri. „Staðan er sú að við tökum við öllum gjöfum og höfum ekki gert upp á milli gefenda hingað til. Við tökum því þannig að þetta sé velvilji,“ segir Erla. Allar ábendingar séu þó vel þegnar og framvegis verði verklag skoðað í þessum efnum. Hún hafi þegar svarað bréfi Árna. En skiljið þið gagnrýnina? „Ég held ég tjái mig sem minnst um það. En við tökum öllum ábendingum sem okkur berast.“
Netverslun með áfengi Akureyri Sjúkrahúsið á Akureyri Páskar Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Fleiri fréttir Kannast ekki við virka samtalið um forsendubrestinn Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Sjá meira