Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar 4. apríl 2026 08:00 Í þessum mánuði býðst einstaklega gott tækifæri til að slá á verðbólguna. Eðlilegt er að spurt sé, af hverju? Jú, vegna þess að hækkunin milli mars og apríl í fyrra var óeðlilega mikil! Verðbólga er mæld sem breyting á vísitölu neysluverðs yfir 12 mánuði. Mánuð fyrir mánuð verður breyting á mælingunni þannig, að elsti mánuðurinn í 12 mánaðaröðinni dettur út og nýr mánuður bætist við. Þannig var röðin í febrúar 2026: mars '25, apríl, maí, júní, júlí, ágúst, september, október, nóvember, desember, janúar '26, febrúar. Í mars mælingunni datt mars '25 út og mars í ár kom inn. Að verðbólgan hafi hækkað í mars frá því sem hún var í febrúar skýrist af því, að mars í fyrra hækkað vísitala neysluverðs um 0,37%, en um 0,55% í ár. Hærri tala kom inn í röðina í stað þeirrar í fyrra og þar með hækkað verðbólgan á milli mánaða. Tækifærið Þá er það tækifærið til að lækka verðbólguna núna í apríl. Það felst í því, að hækkunin í apríl í fyrra var 0,93%. Árið áður var hækkunin í apríl 0,55%. Afleiðingin var, að verðbólga fór úr 3,8% í mars í 4,2% í apríl eða nánast upp á punkt og prik munurinn á 0,93 og 0,55. Taflan sýnir breytingar á vísitölu neysluverðs mánuð fyrir mánuð frá febrúar 2025. Mánuður Breyting Skýring Febrúar 2025 0,91% Féll út í febrúar í ár Mars 0,37% Féll út í mars í ár Apríl 0,93% Fellur út næst Maí 0,20% Júní 0,84% Júlí 0,32% Ágúst -0,15% September 0,11% Október 0,47% Nóvember -0,48% Desember 1,15% Janúar 2026 0,38% Febrúar 0,94% Var örlítið hærra en í febrúar 2025 Mars 0,55% Munurinn á 0,37% og 0,55% olli hækkun verðbólgu Apríl ??? Verði hækkun meiri en 0,93%, þá hækkar verðbólgan, annars stendur hún í stað eða lækkar. Hvað viljum við? Hækkun upp á 0,93% er frekar mikil, því haldist slík hækkun í 12 mánuði jafngildir það 11,75% verðbólgu. Út frá líkum, þá ætti annar slíkur aprílmánuður ekki koma nema undir sérstökum kringumstæðum. Þær voru fyrir hendi í fyrra og má nánast kenna tímasetningu páskanna þá um, sjá neðar. Haldist verðlag óbreytt milli mars og apríl, þá mun það leiða til þess að verðbólga lækkar niður í 4,4% eða þar um bil. Þannig, að bara með því að fyrirtæki og hið opinbera haldi aftur af öllum hækkunum, sem mælast í vísitölu neysluverðs, milli verðmælinga í mars og apríl, þá minnkar verðbólgan. Taflan sýnir áhrif breytinga á vísitölu neysluverðs milli mars og apríl á vænta verðbólgu í apríl. Ég valdi að skoða hækkun um 0,5% eða 1,0%, verðlag standi í stað milli mánaða (0,0% breyting) eða að það lækki um 0,5%, 1,0%, 1,5% eða 2,0%. Breytingar á VNV milli mars og apríl Verðbólga miðað við breytingu +1,0% 5,4% +0,5% 4,9% 0,0% 4,4% -0,5% 3,9% -1,0% 3,4% -1,5% 2,9% -2,0% 2,4% Ljóst er að ekki muni allir liðir í vísitölu neysluverðs lækka og breytingarnar (vonandi lækkanir) verða mismiklar. Fjölmargir aðilar verða að taka sjálfstæðar ákvarðanir og vona að aðrir fylgi á eftir. Tíminn til stefnu er stuttur, því Hagstofan byrjar sína yfirferð á verðlagsbreytingum líklega strax eftir helgi. En hér er tillaga um þá sem geta haft áhrif og ég skora á viðkomandi aðila að grípa hugmyndina á lofti: Ríkissjóður: Að lækka kolefnisgjöld og vörugjöld á bifreiðar sem hækkuðu um áramót. Dagvöruverslanir: Lækka verð hjá sér tímabundið (eða varanlega) á öllum vörutegundum. Afurðastöðvar landbúnaðarvara: Lækka verð hjá sér tímabundið (eða varanlega) á öllum vörutegundum. Dagvöruverslanir bæti þeirri lækkun við þær sem verða samkvæmt lið 2. Mjólkurvörur og aðrir framleiðendur matvöru: Verðfrysting í einhverja mánuði, t.d. fram á haust. Olíusalar: Dragi úr hækkunum sem komið hafa eða stinga sér í gegn um ölduna með hækkanir í apríl. Veitur: Draga til baka (a.m.k. hluta) hækkun á heituvatni frá því í fyrra. Húsaleigufélög og aðrir sem leigja út húsnæði: Frysta húsaleigu í nokkra mánuði. Líka á nýjum samningum. Þetta mun síðan skila sér til reiknaðrar húsaleigu, sem mun líka standa í stað í svipaðan tíma. Gulrótin Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kemur saman líklegast um miðjan maí og birtir yfirlýsingu sína og ákvörðun um vexti þann tuttugasta. Búið er að hóta hækkun vaxta Seðlabankans. Hvert hálft prósent sem vextirnir hækka auka greiðslubyrði heimila, fyrirtækja og hins opinbera mikið. Svo heimilin standi undir sinni byrði, þá munu þau leita eftir auknum tekjum, þ.e. krefjast launahækkunar. Launagreiðendur standa því frammi fyrir bæði hækkun vaxta og kröfu um hærri laun. Á 8. áratugnum var mikil verðbólga og til að bregðast við henni hækkuðu laun á þriggja mánaða fresti með „verðbótahækkun“. Þessu var líklega komið á í samningum árið 1977. Núna stefnir í, að slík „verðbótahækkun“ sé framundan. Hana er hægt að forðast með því að lækka verðlag. Spurningin er því hvort hægt sé að nýta hið einstaka tækifæri, sem mikil hækkun vísitölu neysluverðs í apríl í fyrra, færir okkur til að slá á verðbólguna núna. Ég átta á því, að samkeppnislög banna samráð um þetta og því verður hver og einn aðili, hvers verð á vöru, þjónustu og gjöldum, er mælt í vísitölu neysluverðs, að treysta því að allir (eða sem flestir) taki þátt og lækki verð hjá sér eða a.m.k. hækki það ekki. Gulrótin er lækkun vaxta og að ekki komi til þess að nýta þurfi endurskoðunarákvæði kjarasamninga. Fyrir marga aðila gæti kostnaðurinn af hærri vöxtum og launum orðið margfaldur á við tekjuskerðinguna af lækkunum verðlags. Draumórar eða ekki Eðlilegt er að spyrja hvort þetta sé hægt. Framkvæmdarstjóri Samtaka atvinnulífsins talaði í Silfrinu um daginn um nýja þjóðarsátt. Hún átti hins vegar að koma seinna, þegar skaðinn er orðinn. Eru það draumórar, að fyrirtæki og opinberir aðilar geti stigið þetta skref án þess að búið sé að semja um slíkt? Fjármálaráðuneytið misreiknaði sig illa um áhrif hækkunar vörugjalda á bifreiðar á vísitöluna, en án þeirrar hækkunar væri verðbólgan um 4,8%. Stór ástæða fyrir mikilli hækkun vísitölu neysluverðs í apríl 2025 var að páskar voru seint það árið. Hækkun flugfargjalda um 20,4% (40 punkta hækkun VNV) þá, orsakaði alla hækkun verðbólgu milli mars og apríl. Í ár eru páskar tveimur vikum fyrr á ferð og ættu því ekki að mælast í verðkönnunum í vikunum tveimur eftir páska. (Þá reikna ég með, að páskaálagið á neysluvöru hafi verið fellt niður.) Lokaorð Verðbólga lækkar ekki nema þeir sem sjá um verðlagningu vöru, þjónustu og gjalda sem mælast í vísitölu neysluverðs haldi aftur af hækkunum, haldi verðlagi óbreyttu eða lækki það. Svo einfalt er það. Vegna hinnar miklu hækkunar á vísitölu neysluverðs í apríl í fyrra, býðst einstakt tækifæri til að ná verðbólgunni niður og það rösklega. Tvö önnur sambærileg tækifæri eru síðar á árinu, þ.e. júní og desember. Nýtum þau líka og þá er hægt að kveða niður verðbólgudrauginn í bili. Eigi þetta að heppnast, þá verður þátttakan að vera nokkuð víðtæk. Ekki þýðir að hunsa þetta tækifæri, því næsta vaxtaákvörðun er í ágúst. Að greiða 0,5% hærri vexti af lánum í þrjá mánuði, þ.e. vextir Seðlabankans hækki um 0,25% í maí í staðinn fyrir að lækka um 0,25%, er „refsingin“, sé þetta tækifæri látið úr greipum ganga. Hvet lesendur til að dreifa þessari hugmynd sem víðast. Þetta eru aðgerðir bæði fyrir almenning og atvinnulífið. Höfundur er ráðgjafi og þjóðfélagsrýnir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Marinó G. Njálsson Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinnar við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson Skoðun