Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni Smári Jökull Jónsson skrifar 4. apríl 2026 13:19 Pétur Óskarsson er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Einar Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir stjórnvöld vinna gegn fyrirtækjum í íslenskri ferðaþjónustu. Mikill kurr sé í aðilum á íslenska markaðnum og dæmi séu um söluaðila erlendis sem ekki selji ferðir til Íslands sökum óvissu um verð.
Nýlega tilkynntu stjórnvöld um fyrirhugaða hækkun virðisaukaskatts á baðlón við töluverða óánægju aðila innan ferðaþjónustunnar. Formaður samtaka ferðaþjónustunnar segir óvissu hvað varðar útspil stjórnvalda sífellt vera að aukast og að stórar ákvarðanir séu teknar með stuttum fyrirvara. „Dæmi um það eru gistináttaskatturinn og innviðagjöld á skemmtiferðaskip sem er ákveðið með nokkurra daga fyrirvara. Kílómetragjaldið núna síðast og vörugjöld á bíla. Þetta er allt ákveðið með nokkurra daga fyrirvara og tekur síðan gildi strax. Nú erum við síðan með hangand yfir okkur óvissu um gjaldtöku á ferðamannastöðum í eigu ríkisins,“ segir Pétur Óskarsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Þolinmæði söluaðila brátt á þrotum Hann segir fyrirtæki í ferðaþjónustu vinna langt fram í tímann og búið sé að gefa út verð að hluta til fyrir næsta ár. „Við heyrum það frá söluaðilum okkar að þolinmæði þeirra er orðin mjög takmörkuð. Þeir eru auðvitað bundnir af neytendarétti í sínum löndum og geta ekki breytt verði á ferðum sem er búið að bóka. Öll þessi heimatilbúna óvissa bætist ofan á það sem við erum að horfa á úti í heimi,“ bætir Pétur við. Hann hafi til dæmis heyrt frá söluaðilum í Bretlandi sem segjast ekki selja ferðir til Íslands vegna óvissu. Mikill kurr sé í íslenskum ferðaþjónustuaðilum. „Nýjasta útspil ríkisstjórnarinnar kom núna í fjármálaáætluninni með hækkun virðisaukaskatts á baðlónin sem eru núna okkar dýrætasta og sterkasta samkeppnisforskot. Bara að setja það í loftið setur af stað mikinn kurr hjá bæði innlendum og erlendum aðilum sem eru að bjóða íslenska ferðaþjónustu.“ Hlúa þurfi að ferðaþjónustunni Útspil stjórnvalda auki hvorki arðsemi í greininni né hagvöxt. „Þessi hegðun stjórnvalda, eins og við upplifðum um síðustu áramót og þar á undan, er auðvitað þannig að það er ekki verið að vinna með okkur, það er verið að vinna gegn okkur,“ segir Pétur og bætir við að atvinnugreinin þurfi stuðning. „Það sem ferðaþjónustan þarf á að halda núna er að það sé hlúð að henni og að það sé stuðningur stjórnvalda við greinina. Þar sem hún standi með okkur en ekki gegn okkur með þessum endalausu hugmyndum um nýja skatta og ný gjöld.“ Hann segir forráðamenn greinarinnar eiga í samtölum við stjórnvöld. „Það er okkar hlutverk að reyna að skýra fyrir þeim hvað þetta skiptir máli. Við erum búin að tala um þetta í meira en áratug að fyrirsjáanleiki sé algjör grundvöllur reksturs í ferðaþjónusut. Stjórnvöld segjast skilja það en það er bara í orði en því miður ekki á borði,“ segir Pétur að lokum
Ferðaþjónusta Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Sjá meira