Eldri borgarar verið í lífshættu vegna ábyrgðarleysis framkvæmdaaðila Eiður Þór Árnason skrifar 6. apríl 2026 22:12 Hákon Gunnarsson, hagfræðingur og íbúi í Fannborg, segir bárujárn hafa valdið skemmdum á íbúðabyggingunum í kring. Aðsend Íbúi í Fannborg í Kópavogi segir stórhættu hafa verið á ferðum í dag þegar þungar bárujárnsplötur fuku af vinnusvæði á nærliggjandi byggingar. Plöturnar hafi brotið rúðu og valdið öðrum skemmdum á íbúðabyggingu. Hann gagnrýnir verktaka og lóðarhafa harðlega fyrir að hafa ekki búið betur um svæðið fyrir óveðrið í dag.
Hákon Gunnarsson segist hafa verið í sólstofunni sinni síðdegis í dag þegar hann heyrði læti utandyra. Þá hafi hann séð bárujárnsplötu fjúka út fyrir varnargirðingu byggingarsvæðisins og platan minnt á rakvélablað á fleygiferð. Næst hafi hann tekið eftir brotinni rúðu og öðrum skemmdum við aðalinngang á Fannborg 8 þar sem meðalaldur íbúa sé yfir áttatíu ár, að sögn Hákonar. „Fólk er hreinlega í [lífshættu].“ Þetta skrifar Hákon Gunnarsson í færslu á Facebook-síðu sinni en hann er jafnframt nefndarmaður í skipulagsráði Kópavogs fyrir Samfylkinguna. Myndskeið sem hann tók sýnir það þegar bárujárnsplata fauk yfir varnargirðingu framkvæmdasvæðisins. Klippa: Rifu hús í roki Skilið bygginguna eftir galopna „Þessar eignir voru seldar til niðurrifs fyrir átta árum síðan, tíu dögum fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 2018. Þetta er búið að vera hörmungarsaga síðan,“ segir Hákon í samtali við fréttastofu. „Það hefur ekkert gerst nema bara síðustu vikurnar að það fékkst niðurrifsleyfi fyrir þessar byggingar.“ Hann fullyrðir að niðurrif hafi í kjölfarið hafist á gamla félagsheimilinu í Fannborg 2 án þess að tilskilin leyfi lægju fyrir. „Það varð að stoppa það af.“ Skemmdir nálægt inngangi.Hákon Gunnarsson „Það sem gerðist um helgina var það að þeir bara fóru frá byggingunni galopinni og svo kom náttúrulega veður sem allir vissu af. Það var rosalegt að horfa upp á þetta.“ Níðþungar bárujárnsplötur hafi farið á flug í dag og lögregla og slökkvilið verið kallað á staðinn. Slökkvilið og lögregla komu á vettvang í dagHákon Gunnarsson Leitað til lögmanns Hákon segist ætla að kanna réttarstöðu sína vegna málsins. „Ég talaði við lögmann og hann segir að þetta sé refsivert athæfi.“ „Svona á að hafa einhverjar afleiðingar fyrir þá sem bera ábyrgð á hlutum þarna. Hvort sem það er ég sem kæri eða einhver annar.“ Málinu sé ekki lokið og ljóst á viðbrögðum sem hann hafi fengið við Facebook-færslunni um málið að það sjóði á fólki. Niðurrif hófst nýverið á gamla félagsheimilinu.Hákon Gunnarsson Hákon ítrekar að mikil hætta hafi verið á ferðum þar sem plata hafi fallið nálægt aðalinngangi byggingar með þrjátíu íbúðum þar sem meðalaldur sé hár. Hann nefnir að lokum að sæti hans í skipulagsráði eigi ekki að breyta neinu í þessu máli en Samfylkingin er í minnihluta í Kópavogi. Hann tengist málinu fyrst og fremst sem nágranni sem hafi náð þessu á mynd.
Kópavogur Veður Byggingariðnaður Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira