Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Sunna Sæmundsdóttir skrifar 8. apríl 2026 13:17 Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði. Vísir Samkomulag um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran markar á engan hátt lausn á átökunum í Miðausturlöndum segir prófessor í sagnfræði. Það sé áhyggjuefni að Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur og beiti alvarlegum hótunum í því skyni að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald.
Leiðtogar víða um heim hafa lýst ánægju sinni með tveggja vikna vopnahlé sem komið er á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar. Í samkomulaginu felst að Íranar opni fyrir umferð um Hormússund og hefur heimsmarkaðsverð á olíu lækkað í morgun. Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, segir deiluna hins vegar langt frá því að vera leysta. „Þær kröfur sem Íranir gera í sínum tíu liðum eru kröfur sem Bandaríkjamenn hafa hafnað og við verðum að sjá til hvort Bandaríkjamenn geti samþykkt þær eða hvort þeir geri það ekki og átökin brjótist þá út aftur eða hvort Bandaríkjamenn segi bara að þetta sé búið og við endum þá raunverulega í sömu stöðu og við vorum í áður. Að það sé klerkastjórn í Íran og allir vita að þau eigi möguleika á því að stoppa siglingar um sundið og geti gert það að féþúfu í framtíðinni.“ Önnur olíuframleiðsluríki við sundið eigi eflaust erfitt með að sætta sig við þá stöðu. „Þannig að þessi óstöðugleiki sem er kominn á þetta svæði er ekki búinn.“ Vopnahléð komst á eftir hótun Bandaríkjaforseta sem veitti Írönum í gær frest til miðnættis ef ekki ætti að útrýma heilli siðmenningu, líkt og hann orðaði það. Guðmundur segir yfirlýsinguna fordæmalausa og að stríðsglæpum með árásum á innviði hafi í það minnsta verið hótað. Alvarleg þróun eigi sér stað í alþjóðasamskiptum. „Orðfærið sem var notað var eins og götustrákur að tala, sem þykir kannski ekki við hæfi að menn í virðulegum stöðum líkt og forseti Bandaríkjanna noti,“ segir Guðmundur. „Það má segja að þessi tegund af samskiptum, að ganga fram með mjög alvarlegum hótunum og að reyna með því að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald sé áhyggjuefni. Það sem Trump gerir með þessari hótun í gær er að búa til þá stöðu að hann verði að fá einhverja niðurstöðu. Núna er þetta ákveðinn leikur, eða menúett sem menn eru að dansa og maður veit ekki alveg hver niðurstaðan verður þar sem Íranir nota sér þetta ástand auðvitað líka.“ Íranir séu í hernaðarlega veikri stöðu en hafi ákveðin tök á efnahagsástandinu með því að stýra skipaumferð um Hormússundið. „Í þeirra áætlun eru alls konar kröfur sem Bandaríkin hafa þverneitað en nú eru Bandaríkjamenn komnir í þá stöðu að þeir verða eiginlega að semja eða leggja út í mjög kostnaðarsamar hernaðaraðgerðir sem jaðra við það að vera stríðsglæpir. Þannig þetta er mjög viðkvæmt og óljóst ástand og erfitt að segja hvert það stefnir,“ segir Guðmundur.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Sjá meira