Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Árni Sæberg skrifar 8. apríl 2026 15:59 Elías Blöndal Guðjónsson, framkvæmdastjóri Sante, og Arnar Sigurðsson, meirihlutaeigandi Sante. Vísir/Vilhelm Fern forvarnarsamtök fagna því að niðurstaða hafi loks fengist í Héraðsdómi Reykjaness um að netsala áfengis, eins og hún hefur verið stunduð á Íslandi, sé ólögmæt. Eigendur Santé, netverslunar með áfengi og fleira, segja þeir muni ekki láta dóminn stoppa sig og að málinu verði áfrýjað.
Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, varð í dag fyrstur til að hljóta dóm fyrir að selja áfengi á netinu, með því fyrirkomulagi sem fjöldi netverslana með áfengi hafa notað undanfarin ár. Vilja að stjórnvöld standi með lýðheilsustefnu Vilhjálmur var ekki viðstaddur dómsuppsöguna en það voru fulltrúar forvarnarsamtaka og annarra netverslana með áfengi. Forvarnarsamtökin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF - samstarf félagasamtaka í forvörnum hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna dómsins, þar sem niðurstöðu hans er fagnað. „Samtökin hafa lagt vinnu í að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma. Þau hafa verið í góðri samvinnu við heilbrigðisstéttir og SÁÁ í málinu. Samtökin treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum og áfengisforvarnaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka,“ segir í yfirlýsingunni. Ósammála dóminum og halda ótrauðir áfram Arnar Sigurðsson og Elías Blöndal Guðjónsson, eigendur netverslunarinnar Santé, voru viðstaddir dómsuppsöguna í dag enda hafa þeir fylgst grannt með gangi málsins á hendur Vilhjálmi. Þeir sendu tölvubréf á viðskiptavinu Santé skömmu eftir dómsuppsögu, þar sem þeir segjast ósammála niðurstöðunni og að málinu verði áfrýjað. „En þessi dómur breytir litlu um heildarmyndina. Við hjá Santé höfum barist fyrir sjálfsákvörðunarrétti neytenda í áratug og þetta er aðeins einn liður í þeirri baráttu.“ Staðan sé skýr þar sem fleiri en 100.000 Íslendingar hafi þegar greitt atkvæði með veskinu og valið frjálsa verslun. ESA hafi gert athugasemdir í sjö liðum um að íslenska einokunin standist ekki EES-rétt og það sem skipti mestu, frumvarp um að leyfa netverslun með áfengi, liggi þegar fyrir Alþingi og fari í atkvæðagreiðslu og meirihluti þingmanna sé hlynntur samþykkt þess. „Við ætlum ekki að láta einn dóm stoppa okkur. Santé heldur áfram að berjast fyrir sjálfsákvörðunarrétti neytenda og atvinnufrelsi á Íslandi. Við skálum að leikslokum.“
Netverslun með áfengi Dómsmál Áfengi Verslun Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira