Norlandair mátti ekki bjóða í Ísafjörð á þessari flugvél Kristján Már Unnarsson skrifar 10. apríl 2026 06:56 Twin Otter-vélar Norlandair taka 19 farþega. Egill Aðalsteinsson Skilyrði útboðs Vegagerðarinnar um að flugvél með jafnþrýstibúnaði þyrfti í Ísafjarðarflug útilokaði Norlandair frá því að geta boðið í flugleiðina. Framkvæmdastjóri Norlandair segir að flugtæknilega sé þetta ekki nauðsynleg krafa.
Í kvöldfréttum Sýnar mátti sjá hvar verið var að gera Dash 8 Q200-vél Icelandair klára í flug til Ísafjarðar frá Reykjavíkurflugvelli. Félagið er það eina sem sendi inn tilboð í flugleiðina, tilboð sem Vegagerðin hefur núna hafnað sökum þess hversu hátt það var. Eftir að Flugfélagið Ernir varð gjaldþrota og Mýflug hætti flugrekstri er Norlandair eitt eftir á innanlandsleiðum ásamt Icelandair. En hvers vegna tók Norlandair ekki þátt í útboðinu? Því er svarað hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: „Skilyrði útboðsins voru þannig að þær vélartegundir sem við erum að reka, annars vegar Twin Otter og hins vegar King Air, - Twin Otter er ekki með jafnþrýstibúnaði, - skilyrðin voru með þeim hætti að það þyrfti að vera jafnþrýstibúnaður. Þá dettur Twin Otterinn út. Við gátum notað hins vegar King Air. En níu sæta vélin er bara of lítil fyrir Ísafjörð,“ sagði Arnar Friðriksson, framkvæmdastjóri Norlandair. King Air-vélar Norlandair hafa jafnþrýstibúnað en taka aðeins níu farþega.Sigurjón ólason Flugvélar með jafnþrýstibúnaði geta klifrað í yfir 10.000 feta hæð og þar með upp fyrir veður. Arnar telur að ekki hafi verið þörf á að gera slíka kröfu í Ísafjarðarfluginu. „Það er ekki frá flugtæknilegu sjónarmiði nauðsynlegt að hafa flugvél með jafnþrýstibúnaði á þessari flugleið.“ -Hvers vegna ekki? „Þú þarft ekki að fara það hátt. Þú getur auðveldlega flogið þetta á Twin Otter,“ svarar Arnar. Icelandair notar 37 sæta Dash 8 Q200-vélar á Ísafjarðarleiðinni. Þær eru með jafnþrýstibúnað. Það þýðir að loftþrýstingur helst jafn um borð í farþegarýminu þótt loftið þynnist utan flugvélar eftir því sem hærra er flogið.Sigurjón Ólason Arnar minnir á að Norlandair noti Twin Otter í áætlunarflugi til Grænlands, samkvæmt samningi við þarlend stjórnvöld, og noti vélina einnig í flugi fyrir danska herinn þar allt árið. „Þetta er fínasta vél í það sem við erum að gera og fín vél á Ísafjörð. Enda erum við að nota Twin Otter í áætlunarflugi á Íslandi; til Grímseyjar, til Þórshafnar og til Vopnafjarðar.“ Twin Otter er stærsta flugvél sem vestfirska Flugfélagið Ernir gerði út frá Ísafirði meðan höfuðstöðvar þess voru þar.Hörður Guðmundsson -Þannig að ef þetta yrði boðið út aftur og leyft að nota slíka vél, þá mynduð þið vera með í útboðinu? „Þá myndum við íhuga það mjög alvarlega og sennilega taka þátt, já,“ svarar framkvæmdastjóri Norlandair. Twin Otter frá Norlandair á flugvellinum í Grímsey.Egill Aðalsteinsson Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni standa viðræður enn yfir við Icelandair um Ísafjarðarflugið og óvíst á hvorn veginn fer. Vonast er þó til þess að niðurstaða verði fengin fyrir lok næstu viku. „Við bíðum bara átekta. Þetta er í ákveðnu ferli hjá Vegagerðinni. Sjáum hvað setur,“ segir Arnar Friðriksson. Arnar Friðriksson er framkvæmdastjóri Norlandair.Sigurjón Ólason
Ísafjarðarbær Fréttir af flugi Byggðamál Akureyrarflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Samgöngur Tengdar fréttir Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Forsvarsmenn Vegagerðarinnar hafa hafnað tilboði Icelandair um rekstur flugleiðarinnar milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Samningaviðræður um framhaldið eru nú yfirstandandi milli Vegagerðarinnar og Icelandair. 17. mars 2026 13:55 Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. 26. febrúar 2026 09:14 Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Sjá meira
Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Forsvarsmenn Vegagerðarinnar hafa hafnað tilboði Icelandair um rekstur flugleiðarinnar milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Samningaviðræður um framhaldið eru nú yfirstandandi milli Vegagerðarinnar og Icelandair. 17. mars 2026 13:55
Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni. 26. febrúar 2026 09:14