Tekur Conte aftur við ítalska landsliðinu í sumar? Ágúst Orri Arnarson skrifar 11. apríl 2026 08:01 Antonio Conte er sterklega orðaður við endurkomu í stjórastöðuna hjá Ítalíu. Enrico Locci/Getty Images Ítalir leita að nýjum leiðtoga, framtíðarmanni í starf landsliðsþjálfara, eftir að hafa mistekist þriðja skiptið í röð að komast á HM.
Stormasamt hefur verið á skrifstofu ítalska knattspyrnusambandsins síðan Ítalía tapaði í vítaspyrnukeppni í HM-umspilinu gegn Bosníu. Landsliðsþjálfarinn Gennaro Gattuso lét af störfum og forseti knattspyrnusambandsins, Gabriele Gravina, sagði sömuleiðis af sér. Sambandið verður forsetalaust þangað til í júní þegar ársþingið fer fram en Silvio Baldini hefur fengið tímabundna stöðuhækkun. Baldini mun stýra Ítalíu sem aðalþjálfari í æfingaleikjum gegn Lúxemborg og Grikklandi í byrjun júní. Fyrsta verk hjá nýjum forseta verður svo að finna framtíðarstjóra Ítalíu, manninn sem mun leiða liðið áfram í Þjóðadeildinni í haust og undankeppni EM á næsta ári. Antonio Conte, þjálfari Ítalíumeistara Napoli, er sterklega orðaður við endurkomu í starfið. Conte þjálfaði Ítalíu áður á árunum 2014-16 og hefur gert bæði Napoli og Inter að Ítalíumeisturum. Forseti Napoli hefur sagt að félagið myndi sleppa Conte lausum ef ítalska landsliðið kæmi kallandi. Conte gefur sjálfur ekkert upp en segir eðlilegt að hann sé inni í myndinni. „Ef ég væri forseti knattspyrnusambandsins myndi ég íhuga að ráða mig til starfa. Ásamt öðrum, en það er bara eðlilegt að Antonio Conte sé nafn á blaði, af mörgum ástæðum. Ég var með landsliðið áður, ég þekki umhverfið,“ sagði Conte.
Ítalski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Hlín og félagar á leið í 16-liða úrslitin sannfærandi Uppgjörið: Czarni - Breiðablik 1-0 (7-2) | Áttu aldrei séns Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Diljá Ýr skaut Brann í 16-liða úrslitin Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Uppgjörið: Frankfurt - FH 4-1 | Stórliðið batt enda á Evrópudraumi FH Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Búlgarskur formaður skotinn til bana „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Sjáðu mörkin hjá ungu strákunum gegn Sviss Slapp eftir að hafa tekið Brynjólf hálstaki: „Þetta er bara rautt“ „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ „Get ekki beðið um mikið meira“ Meistarataktar í Sevilla frá upphafi til enda „Langt síðan við unnum fótboltaleik“ „Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Tíu tékkar réðu ekki við Englendinga Uppgjörið: Lúxemborg - Ísland 0-3 | Gott svar við döprum upphafsleik Einkunnir Íslands: Lúxus frá Andra Lucasi í Lúxemborg Stressaður Arnar verði að vinna: „Er þetta of flókið?“ „Það er ekkert grín að skora fimm mörk í landsleik“ „Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir „Þýðir ekkert að væla yfir stöðunni“ Sjá meira