Innherji

Felur í sér „veru­lega á­hættu“ fyrir efna­hags­stöðug­leika og magnar hag­sveiflur

Hörður Ægisson skrifar
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Fjármálaráð gagnrýnir harðlega nýlega samþykkt frumvarp um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. „Í ljósi umfangs bótagreiðslna og þeirra hvata sem kerfið skapar er raunhæf hætta á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs.“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Fjármálaráð gagnrýnir harðlega nýlega samþykkt frumvarp um tengingu almannatrygginga við launavísitölu. „Í ljósi umfangs bótagreiðslna og þeirra hvata sem kerfið skapar er raunhæf hætta á að misræmi myndist milli útgjalda og tekjuöflunargetu hins opinbera með tilheyrandi áhrifum á verðstöðugleika, vinnumarkað og skuldastöðu ríkissjóðs.“ Vísir/Lýður Valberg

Fjármálaráð fer hörðum orðum um ákvörðun stjórnvalda að vísitölutengja bætur almannatrygginga, þar sem verið sé að bregðast við „ofmetnum“ vanda, og segir afleiðingarnar vera „veruleg áhætta“ fyrir stöðugleika í efnahagslífinu með því auka sjálfvirkni í útgjaldaþróun, magna hagsveiflur og minnka getu ríkisins til að beita mótvægisaðgerðum. Í ljósi reynslu annarra þjóða þá „sætir það furðu“, að mati ráðsins, að slíkt kerfi sé tekið upp, einkum þegar litið er til þess að tekjur öryrkja hafa vaxið hraðar en vinnandi fólks undanfarin áratug.


Tengdar fréttir

Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun

Seðlabanki Íslands gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, í minnisblaði sem barst velferðarnefnd Alþingis fyrir helgi.

Myndi hjálpa tölu­vert að fá skila­boð um að það yrðu ekki átök á vinnu­markaði

Það myndi draga úr óvissu og slá á hækkun verðbólguvæntinga ef aðilar vinnumarkaðarins kæmu strax út með þau skilaboð að það væru ekki að fara hefjast átök á vinnumarkaði með því að virkja uppsagnarákvæði kjarasamninga, að sögn seðlabankastjóra. Að því marki sem frumvarp stjórnvalda sem miðar að því að tengja bætur almannatrygginga við launavísitölu hefur áhrif á trúverðugleika ríkisfjármála þá væri það jákvætt innlegg að falla frá þeim áformum við núverandi aðstæður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×