Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Freyja Þórisdóttir skrifar 12. apríl 2026 09:30 Ferðamenn sem hingað komu í mars voru margir hverjir fastir í höfuðborginni enda nánast algengara en ekki að varað væri við erfiðum akstursskilyrðum og vegum lokað. Vísir/Vilhelm Gular og appelsínugular viðvaranir voru orðnar daglegt brauð um miðbik marsmánaðar. Í samantekt Veðurstofu Íslands segir að flesta daga mánaðarins hafi einhvers konar veðurviðvaranir verið í gildi einhvers staðar á landinu.
Samgöngutruflanir, björgunarsveitaraðgerðir og snjóflóð voru mikið í fréttum í mars enda með eindæmum úrkomu- og umhleypingasamur mánuður. Á vef Veðurstofu má lesa um tíðarfar í mars en þar segir meðal annars að mars hafi að meðallagi verið kaldari en undanfarinn áratug. „Töluvert var um að veður og færð yllu vandræðum. Mánuðurinn hófst með stórhríð á Austurlandi með tilheyrandi samfélagsáhrifum og samgöngutruflunum,“ segir í samantekt Veðurstofunnar. Þá er einnig greint frá því að oftar en ekki hafi verið „einhvers konar veðurviðvörun í gildi einhvers staðar á landinu“ en þær töldu á annan tug. Meðalhiti í Reykjavík mældist 0,2 stig í mars. Það er 1,0 stigi undir meðallagi 1991 til 2020 og 1,5 stigi undir meðallagi síðustu tíu ára. Að tiltölu var kaldast á vesturhluta landsins. Hlýjast var að tiltölu á Austfjörðum en þar mældist meðalhitinn lítillega yfir meðallagi undanfarins áratugar á nokkrum veðurstöðvum. Veturinn hlýr og bjartur heilt yfir Ef litið er tíðarfar yfir allan veturinn má sjá að hann mældist alls ekki kaldur þegar á heildina er litið. Í Reykjavík voru alhvítir dagar vetrarins 27, sem er 20 færri en að meðaltali 1991 til 2020. Langflestir alhvítu daganna í Reykjavík voru í mars, eða 20 af 27. Aðrir mánuðir voru óvenju snjóléttir. „Desember var sérlega hlýr. Á landsvísu var þetta þriðji hlýjasti desembermánuður frá upphafi mælinga,“ segir á vef Veðurstofunnar. Sólskinsstundir mældust jafnframt vel yfir meðallagi en í Reykjavík voru þær 313, sem er 107 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar í vetrarmánuðunum fjórum 159, sem er 40 stundum yfir meðallagi áranna 1991 til 2020. Fréttastofa Sýnar efndi til aukafréttatíma í sjónvarpi klukkan tólf á hádegi vegna óveðurs um land allt fimmtudaginn 26. mars.
Veður Færð á vegum Snjóflóð á Íslandi Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Fleiri fréttir Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Sjá meira