Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lovísa Arnardóttir skrifar 13. apríl 2026 07:38 Söngvarinn sagðist gera sér grein fyrir mögulegum afleiðingum handtökunnar á tónleikaferðalagið en vildi samt taka þátt. Vísir/Getty Söngvari Massive Attack, Robert Del Naja, var handtekinn fyrir að sýna stuðning við samtökin Palestine Action á mótmælum gegn banni gegn samtökunum í miðborg London á laugardag. Handtakan gæti haft áhrif á tónleikaferðalag hljómsveitarinnar.
Del Naja, einnig þekktur sem 3D, var á meðal hundraða mótmælenda á Trafalgartorgi síðdegis á laugardag og hélt á skilti sem á stóð „Ég er á móti þjóðarmorði, ég styð Palestine Action“. Lögreglan í London sagði að 523 manns hefðu verið handteknir fyrir miðnætti á laugardag, 11. apríl. Fólkið væri á aldrinum 18 til 87 ára. Í frétt Guardian segir að á upptöku af handtöku hans megi sjá lögreglumenn nálgast Del Naja og segja honum að það eigi að handtaka hann, áður en þeir bera hann burt frá mótmælunum á meðan aðrir mótmælendur fagna og klappa. Hæstiréttur í Bretlandi hefur dæmt bannið ólöglegt. Vísir/EPA Vildi mótmæla sama hvað Í frétt Guardian kemur einnig fram að Del Naja hafi sagt við fjölmiðla fyrir handtökuna að hann hafi viljað taka þátt þrátt fyrir þær afleiðingar sem handtaka gæti haft á feril hans. „Þar sem ég er tónlistarmaður var auðvitað mikill uggur í mér yfir því að við gætum ekki ferðast og fengið vegabréfsáritanir,“ sagði hann. „En ég hugsaði „þetta er fáránlegt“ og þegar lögreglan byrjaði að handtaka fólk aftur fannst mér það enn fáránlegra. Þannig að ég ætla að halda á skilti í dag. Ef ég verð handtekinn mun ég koma fyrir dóm með góða leiðsögn og segja: „Þetta var ólögleg handtaka og þess vegna sætti ég mig ekki við hana.““ Hann bætti við: „Ég tel að aðgerðir Palestine Action hafi verið mjög þjóðræknar því þær voru í raun að vernda landið okkar frá því að taka þátt í alvarlegum stríðsglæpum og brjóta alþjóðalög. „Hversu þjóðræknari getur maður verið en það?“ Samkvæmt frétt Guardian Massive Attack á að hefja sumartónleikaferðalag um Evrópu frá 26. maí til 8. júní, sem hefst í Helsinki í Finnlandi, og kemur síðan fram í Rättvik í Svíþjóð, Kaupmannahöfn í Danmörku, Berlín í Þýskalandi og Brussel í Belgíu. Hljómsveitin var stofnuð í Bristol árið 1988 af Del Naja, Grant „Daddy G“ Marshall, Adrian „Tricky“ Thaws og Andrew „Mushroom“ Vowles. Frá og með 2025 eru aðeins Del Naja og Marshall í hljómsveitinni. Um fimm hundruð manns voru hantekin á mótmælunum um helgina. Vísir/EPA Um 500 manns voru handtekin á mótmælunum um helgina sem voru fyrstu mótmælin gegn banni á Palestine Action síðan bann samtakanna var dæmt ólöglegt af hæstarétti í febrúar. Í dómi hæstaréttar sagði að bann stjórnvalda á samtökunum væri „ósanngjarnt og ólöglegt“ og að flestar aðgerðir þeirra hefðu ekki náð því stigi, umfangi og þrautseigju til að vera skilgreindar sem hryðjuverk. 2.200 handtökur Samkvæmt frétt Guardian gaf lögreglan í London til kynna eftir dómnn að lögreglumenn myndu líklega ekki halda áfram handtökum en í mars sagðist hún ætla að hefja aftur handtökur mótmælenda fyrir að styðja Palestine Action. Fleiri en 2.200 manns hafa verið handteknir hingað samkvæmt fréttinni til fyrir að hafa lýst yfir stuðningi við Palestine Action. Defend Our Juries, sem skipulögðu mótmælin á laugardag, sögðu í yfirlýsingu að lögreglan kysi að framkvæma handtökur þrátt fyrir að bann stjórnvalda á samtökunum hafi verið dæmt ólöglegt af hæstarétti og þrátt fyrir viðvörun frá fremstu lögfræðingum um að allar handtökur væru ólöglegar. Talsmaður samtakanna lýsti handtökunum sem „súrrealískum“.
Bretland Tjáningarfrelsi Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Tengdar fréttir Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Björk Guðmundsdóttir hefur fjarlægt alla tónlist sína af streymisveitum í Ísrael. Það eru ísraelskir miðlar sem greina frá þessu en söngkonan hefur ekki gefið frá sér formlega yfirlýsingu vegna málsins. 22. september 2025 16:59 Gítarleikari Massive Attack er látinn Angelo Bruschini, gítarleikari sem spilaði lengi með bresku sveitarinni Massive Attack, er látinn. Hann varð 62 ára gamall. 24. október 2023 13:56 Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Fleiri fréttir Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Sjá meira
Björk neitar Ísraelum um tónlist sína Björk Guðmundsdóttir hefur fjarlægt alla tónlist sína af streymisveitum í Ísrael. Það eru ísraelskir miðlar sem greina frá þessu en söngkonan hefur ekki gefið frá sér formlega yfirlýsingu vegna málsins. 22. september 2025 16:59
Gítarleikari Massive Attack er látinn Angelo Bruschini, gítarleikari sem spilaði lengi með bresku sveitarinni Massive Attack, er látinn. Hann varð 62 ára gamall. 24. október 2023 13:56