Ancelotti gefur Neymar vonarglætu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2026 22:02 Neymar hefur ekki spilað með brasilíska landsliðinu síðan í október 2023. AFP/CARL DE SOUZA Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíu, telur að Neymar hafi enn tíma til að ná hundrað prósent heilsu og spila sig inn í hóp Brassa á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Hinn 34 ára gamli Neymar vonast til að spila á sínu fjórða heimsmeistaramóti í sumar en meiðsli hafa komið í veg fyrir að hann hafi spilað fyrir Brasilíu síðan í október 2023. „Hann getur náð hundrað prósent heilsu aftur,“ sagði Ancelotti við franska blaðið L'Equipe þegar hann var spurður út í Neymar. Er í mati hjá bæði sambandinu og þjálfaranum „Hann er í mati hjá brasilíska knattspyrnusambandinu og hjá mér. Hann hefur enn tvo mánuði til að sýna að hann hafi það sem þarf til að spila á næsta heimsmeistaramóti,“ sagði Ancelotti. 🚨 𝐁𝐑𝐄𝐀𝐊𝐈𝐍𝐆: Ancelotti will 𝗖𝗔𝗟𝗟 𝗨𝗣 Neymar for the World Cup ‘if he continues like this’.“Neymar is on the right track. He must continue this way and improve his fitness,” Carlo Ancelotti told L’Equipe. 🗣️“He is capable of returning to 100% fitness. I’ve said it… pic.twitter.com/H6o0E4M4SL— 433 (@433) April 11, 2026 Neymar er markahæsti leikmaður Brasilíu frá upphafi með 79 mörk en hann hefur ekki verið í neinum af hópum Ancelottis síðan Ítalinn tók við í júní. „Ég hef sagt þetta nokkrum sinnum og það er mjög skýrt: Ég mun velja þá leikmenn sem eru líkamlega tilbúnir,“ ítrekaði Ancelotti. Kallað hefur verið eftir því að Neymar verði valinn í HM-hóp Brasilíu. Stuðningsmenn Brasilíu sungu nafn Neymars í 2-1 tapi liðsins gegn Frakklandi í upphitunarleik fyrir HM í síðasta mánuði. Hefur skráð sig á spjöld sögunnar „Neymar hefur skráð sig á spjöld sögunnar í brasilískum fótbolta og heldur því áfram. Hann er mikill hæfileikamaður og það er eðlilegt að fólk haldi að hann geti hjálpað okkur að vinna næsta heimsmeistaramót,“ sagði Ancelotti. Neymar fór í minniháttar aðgerð á vinstra hné þann 22. desember. Fyrr í þessum mánuði fór hann í hnéaðgerð í landsleikjahléi til að vera klár í slaginn fyrir heimsmeistaramótið í júní. „Eftir hnémeiðslin [í desember] hefur Neymar náð góðum bata. Hann er að skora mörk. Hann þarf að halda áfram á þessari braut og bæta líkamlegt ástand sitt. Hann er á réttri leið,“ sagði Ancelotti. Batnar með hverjum leik Neymar hafði misst af síðustu tveimur leikjum liðsins en spilaði allar níutíu mínúturnar í 1-0 deildarsigri Santos á Atletico Mineiro á laugardag. „Neymar batnar með hverjum leik. Hann hefur verið að æfa aukalega. Hreyfingar hans með boltann eru mun betri og hann mun líklega verða enn betri. Það er áhættusamt að láta hann spila allar níutíu mínúturnar. Við sjáum hvort hann ráði við það og við munum vinna að því að hann spili á þriðjudag. Við erum himinlifandi að sjá hann njóta leiksins eins og hann gerði,“ sagði Cuca, þjálfari Santos.
HM 2026 í fótbolta Brasilía Mest lesið „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti FIFA heldur settri stefnu Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Franco Baresi er látinn Fótbolti Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Enski boltinn Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Enski boltinn Fleiri fréttir Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ „Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Franco Baresi er látinn FIFA heldur settri stefnu Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Stones skrifar undir hjá ítölsku meisturunum Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bann Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð Newcastle Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir dramatíska framlengingu og vítaspyrnukeppni Mun það sama gerast við Anderson og gerðist við Philips hjá City? Sjá meira