Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Jakob Bjarnar skrifar 17. apríl 2026 11:22 Hanna Katrín Friðriksson er atvinnuvegaráðherra. ESA vill fá svör um hversu mörgum leyfum hefur verið úthlutað til sjókvíaeldis, fresturinn er runninn út og ekkert bólar á svörum. vísir/samsett Nú eru liðnir tæpir þrjátíu og tveir dagar frá því að framlengdur frestur til að svara upplýsingabeiðni ESA um útgáfu leyfa til sjókvíaeldis á laxi rann út. Fresturinn rann út án þess að stjórnvöld hirtu um að svara.
Jón Kaldal og Íslenski náttúruverndarsjóðurinn vekja sérstaka athygli á þessu en ESA, sem er eftirlitsstofnun EFTA, vill fá upplýsingar um útgáfu leyfa fyrir sjókvíaeldi á laxi við Ísland, án þess að stjórnvöld hafi áður látið fara fram flokkun og mat á ástandi vatnshlota. Atvinnuvegaráðherra standi í brotastarfsemi Þetta gengur gegn vatnatilskipun ESB sem innleidd var hér á landi í lögum um stjórn vatnamála. Með öðrum orðum, líklega var ólöglega staðið að útgáfu leyfanna, að sögn Jóns. Jón Kaldal furðar sig á stefnu stjórnvalda í sjókvíaeldismálum.vísir/vilhelm Spurður hvort ekki séu viðurlög við því að hunsa fyrirspurnina segir Jón að hann bresti hreinlega lögfræðiþekkingu en hann telur að þetta gæti endað með kæru á Ísland fyrir brot á EES-samningnum. „Viðreisn vill í ESB en atvinnuvegaráðherra flokksins stendur í brotastarfsemi á lögum ESB að yfirlögðu ráði,“ segir Jón háðskur í bragði. Ekki í samræmi við lög um stjórn vatnamála Á vefsíðu Íslenska náttúruverndarsjóðsins má fylgjast með hversu langt stjórnvöld eru komin fram yfir frestinn til að svara ESA en frestur var gefinn til 2. mars og þá framlengdur til 17. mars, að ósk íslenskra stjórnvalda. Að sögn Jóns var það umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sem tók að sér að svara fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Enn bólar ekki á svari. Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra er í fæðingarorlofi en hann er væntanlegur til baka á mánudaginn. „Þetta er afar athyglisverð staða að ýmsu leyti. Ekki síst vegna þess að viku eftir að framlengdur frestur ESA rann út lagði atvinnuráðherra fram á Alþingi frumvarp um lagareldi sem er augljóslega ekki í samræmi við lög um stjórn vatnamála og Evróputilskipunina,“ segir Jón.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjókvíaeldi Evrópusambandið Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira