Enski boltinn

Læri­sveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úr­vals­deildinni

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Frank Lampard hefur sannað sig fyrir stuðningsmönnum Coventry sem efuðust stórlega um ráðninguna.
Frank Lampard hefur sannað sig fyrir stuðningsmönnum Coventry sem efuðust stórlega um ráðninguna. Freddie Yeo/MB Media/Getty Images

Coventry getur tryggt sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið mætir Blackburn Rovers.

Eitthvað mikið þarf að fara úrskeiðis svo Coventry stígi ekki upp í úrvalsdeildina. Liðið þarf aðeins eitt stig úr síðustu fjórum leikjum tímabilsins. Sigur eða jafntefli gegn liðsfélögum Andra Lucasar Guðjohnsen hjá Blackburn myndi því duga í kvöld.

Coventry var síðast í úrvalsdeildinni fyrir aldarfjórðungi síðan, tímabilið 2000-01. Síðan þá hefur liðið gengið í gegnum djúpa dali, alla leið niður í D-deildina.

Á þeim tíma varð félagið heimilislaust, því það hafði ekki lengur efni á leigu heimavallarins, og þurfti að leita á náðir nágrannaliða í Birmingham og Northampton til að spila heimaleiki. Þau vandamál eru þó ekki lengur til staðar og liðið leikur sína heimaleiki í Coventry.

Frank Lampard tók við stjórnartaumunum hjá Coventry árið 2024. Ráðningin var ekki vinsæl meðal stuðningsmanna sem sáu mikið á eftir Mark Robins. Lampard hefur hins vegar tekist að vinna sig á band stuðningsmanna með góðum árangri.

Þetta er fimmta þjálfarastarfið sem Lampard tekur að sér síðan skórnir fóru á hilluna. Hann náði góðum árangri með Derby County en mistókst að vinna umspilið um sæti í úrvalsdeild þar. Honum tókst síðan ekki að festa sig í sessi hjá Chelsea eða Everton en allt stefnir í að Lampard leiði Coventry upp í ensku úrvalsdeildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×