„Þær leita rosalega mikið upp kantana“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 18. apríl 2026 11:01 Hildur veit hvar hætturnar liggja eftir fyrri leik Englands og Íslands. Harriet Massey/Getty Images Hildur Antonsdóttir hlakkar til harðra átaka við enska landsliðið á Laugardalsvelli í dag.
Ísland vann sterkan 1-0 sigur gegn Úkraínu fyrr í vikunni en nú er komið að Evrópumeisturum Englands, einu besta landsliði heims. Sá leikur verður væntanlega aðeins öðruvísi. „Við gerum bara ráð fyrir því að við munum þurfa að verjast meira á móti Englandi. Mitt hlutverk verður bara að stríða miðjumönnunum, ýta í þær og trufla þær,“ sagði Hildur. England vann fyrri leik liðanna 2-0 en bæði mörkin komu eftir fyrirgjafir. Hildur segir Ísland þurfa að passa betur upp á það í dag. „Þær leita rosalega mikið upp kantana og fara í yfirtölu þar. Þær skora bara lang flest mörkin sín þar. Við þurfum að hafa gætur á því og passa að manna teiginn rétt. Koma í veg fyrir þessar fyrirgjafir en auðvitað munu einhverjar fyrirgjafir koma og þá þurfum við bara að vera tilbúnar.“ Laugardalsvöllurinn er ekki upp á sitt allra besta þessa dagana eftir vont veðurfar í apríl en Hildur kvartar ekki. „Völlurinn var allt í lagi. Við áttum kannski aðeins erfitt með að fóta okkur og finna sendingar en hitt liðið lendir svosem í því líka, þannig að þetta er bara jafn erfitt fyrir bæði lið.“ Hildur í átökum gegn Úkraínu. VÍSIR Þetta hindrar Englendinga kannski í þeirra uppspili upp kantinn? „Já og nei. Boltinn rennur rosalega hratt, sem er gott fyrir þær, en það verður bara skemmtilegt að díla við þetta.“ Klippa: Hildur ræðir landsleikinn við England
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Körfubolti Fleiri fréttir Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Sjá meira