Leik lokið: Njarð­vík-Grinda­vík 81-87 |Grindavíkurkonur byrja betur

Siggeir Ævarsson skrifar
Isabella Ósk Sigurðardóttir átti mjög góðan leik og skoraði 22 stig fyrir Grindavík í kvöld.
Isabella Ósk Sigurðardóttir átti mjög góðan leik og skoraði 22 stig fyrir Grindavík í kvöld. Vísir/Anton Brink

Það voru tvö funheit lið sem mættust í Ice Mar höllinni í dag í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna. Bæði Njarðvík og Grindavík sópuðu sínum viðureignum í 8-liða úrslitum og því allar forsendur til staðar fyrir alvöru Suðurnesjaslag hér.

Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun og staðan 18-22 fyrir Grindavík þar sem þær Brittany Dinkins og Danielle Rodriguez voru búnar að skora öll stig Njarðvíkur, níu stig hvor, sem er varla sjálfbært til lengri tíma litið. Hjá Grindavík voru aftur á móti sex leikmenn komnir á blað eftir fyrstu tíu mínúturnar.

Grindvíkingar voru öllu beittari í öðrum leikhluta og komust tólf stigum þegar mest var. Þær voru að leita mikið inn í teig og spiluðu þétta vörn sem gaf þeim ódýrar körfur. Það færðist töluverð harka í leiknn á þessum tímapunkti sem virtist fara aðeins í taugarnar á Njarðvík. Staðan í hálfleik 34-44.

Gestirnir byrjuðu á að koma muninum upp í 14 stig en þá hrukku Njarðvíkingar í gang og voru einfaldlega miklu betri næstu níu mínútur eða svo. Dinksins og Dani héldu áfram að gera Grindvíkingum erfitt fyrir í vörninni og staðan eftir þrjá leikhluta 58-61 þar sem allt virtist vera að falla með Njarðvíkingum.

Njarðvíkingar héldu uppteknum hætti í upphafi fjórða og komust fljótlega yfir en tveir þristar í röð frá gestunum snéru leiknum aftur og þegar fjórar mínútur voru eftir var staðan 71-71 og allt í járnum.

Sóknarleikur Grindavíkur var mjög stirður framan af seinni hálfleik en þær hrukku loks í gírinn á lokakaflanum og keyrðu þennan sigur heim að lokum. Lokatölur í Njarðvík í spennandi leik 81-87.

Nánari umfjöllum og viðtöl á Vísi síðar í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira