Körfubolti

Of mikil pása gæti verið slæm

Stefán Árni Pálsson skrifar
Emil Barja á hliðarlínunni
Emil Barja á hliðarlínunni Vísir/Hulda Margrét

„Þetta leggst bara rosa vel í okkur. Þær eru allar mjög spenntar og bara til í þetta,“ segir Emil Barja þjálfari Hauka fyrir fyrsta leik liðsins gegn Keflavík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í kvöld en leikurinn fer fram í Ólafssal og verður í beinni á Sýn Sport.

„Keflvíkingar geta verið mjög góðar en hafa kannski verið að spila undir getu í vetur, þannig að þetta verður bara svolítið skemmtilegt.“

Emil segir að Haukaliðið ætli sér að setja mikla boltapressu á gestina.

„Og reyna að ýta þeim út úr því sem þær vilja gera. Þær náttúrulega eru að hlaupa mikið af kerfum sem við viljum reyna að koma þeim út úr. Við viljum reyna að hafa leikinn hraðan og það held ég að sé lykillinn að þessu.“

Keflavík fór í oddaleik gegn KR í 8-liða úrslitum á meðan Haukar sópuðu Stjörnunni í sumarfrí. Liðið hefur því verið í góðu fríi milli einvíga.

„Það er oft líka hættulegt í hina áttina. Að við kannski komum aðeins of slakar til leiks. Þær eru náttúrulega með breiðan hóp þannig að þær geta verið að rótera og nota marga leikmenn. Við erum búnar að æfa mjög vel og það er búið að vera mikill kraftur á æfingum hjá okkur svo vonandi komumst við í sama gír og þær strax.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×