Hvert stefnir Bláskógabyggð? Valdís María Smáradóttir skrifar 21. apríl 2026 07:01 Í minni sveitarfélögum hefur rödd hvers og eins íbúa meira vægi en víða annars staðar. Því er mikilvægt að virkt íbúasamráð í sveitarfélögum eins Bláskógabyggð sé til staðar. Íbúasamráð snýst um meira en að kjósa fulltrúa í sveitarstjórn. Það felur í sér virkt samtal, gagnsæi og raunverulegt tækifæri fyrir fólk til að hafa áhrif. Í Bláskógabyggð er auðvelt að skapa slíkt umhverfi, en það krefst þess að forystan leggi sig fram við að hlusta, upplýsa og virkja íbúa. Það getur meðal annars falist í fleiri íbúafundum, verkefnum þar sem íbúar taka beinan þátt og streymi sveitarstjórnarfunda. Íbúar búa yfir mikilvægri þekkingu á sínu nærumhverfi og ættu að hafa raunverulega aðkomu þegar kemur að stórum málum, sem hafa áhrif á framtíð sveitarfélagsins. Með því að virkja þessa þekkingu skapast tækifæri til að efla þróun samfélagsins. Innan sveitarfélagsins eru þrír þéttbýliskjarnar ásamt dreifbýlli svæðum, svo sem Þingvallasveit. Allir búa þeir yfir dýrmætri sérstöðu sem mikilvægt er að glata ekki, á eins ört vaxandi skeiði og nú á sér stað innan Bláskógabyggðar. Innan þessara kjarna býr fólk með ólíkar skoðanir, hagsmuni og sýn á hlutina. Það er því mikilvægt að afla upplýsinga frá þessum hópum í heild sinni, tengja saman ólík sjónarmið og taka ákvarðanir út frá heildarmyndinni. Það verður ekki hjá því komist að sveitarfélög þurfi að taka stórar, erfiðar og stundum óvinsælar ákvarðanir, en þá er mikilvægt að upplýsa íbúa um forsendur ákvarðananna. Framtíðarsýn skiptir hér miklu máli. Til að við getum haldið áfram að byggja hér upp öflugt samfélag þarf að horfa lengra fram í tímann en eitt kjörtímabil. Íbúum Bláskógabyggðar hefur fjölgað hratt á undanförnum árum, jafnvel hraðar en heilbrigt er. Því er þörf á skýrri langtímastefnu um þróun sveitarfélagsins, hvort sem litið er til skipulagsmála, fjölbreyttari atvinnu eða innviða, til að halda í við áframhaldandi þróun. Með markvissri vinnu við gerð langtímaáætlana og skýr markmið má koma í veg fyrir þann „bútasaum“ sem of oft einkennir þróun þegar boltinn rúllar of hratt og ákvarðanir teknar í skyndi. Við ættum markvisst að vinna að því að vera á undan áætlun með því að greina þarfir samfélagsins tímanlega og tryggja að fjármunum sé varið á skynsamlegan hátt. Þannig byggjum við upp innviði sem standast tímans tönn og þjóna íbúum til framtíðar, í stað skammtímalausna. Ég tel að framtíð Bláskógabyggðar byggist á því að við nýtum styrkleika samfélagsins til fulls. Það gerum við best með því að virkja íbúana sjálfa, en einnig með skýrri stefnu og hugrekki til að fylgja henni eftir. Sveitarfélagið ætti að vera vettvangur þar sem hugmyndir íbúa fá að koma fram og þar sem fólk finnur að það getur haft áhrif, en líka þar sem stefna og forgangsröðun eru skýr og ábyrg. Bláskógabyggð á mikið inni þegar kemur að framsýni, og áframhaldandi uppbyggingu. Sveitarfélagið hefur alla burði til að halda áfram að þróast með markvissum og skipulögðum hætti. Það er því tækifæri til að leggja enn meiri áherslu á framsýni í skipulagsmálum og atvinnustefnu. Þannig höldum við áfram að byggja samfélag sem er eftirsóknarvert til framtíðar. Höfundur skipar 2. sæti Þ-listans í Bláskógabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bláskógabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira