Hækkun skráningargjalda í háskólana – skref í átt að stéttskiptara námi? Hrönn Stefánsdóttir skrifar 21. apríl 2026 08:01 Á undanförnum vikum hafa komið fram upplýsingar um hækkun skrásetningargjalda við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Gjaldið hækkar úr 75.000 kr. í 100.000 kr. fyrir almenna námsmenn og úr 55.000 kr. í 75.000 kr. fyrir öryrkja. Fyrir suma kann þetta að virðast hófleg hækkun. Fyrir tekjulágar fjölskyldur, einstaklinga með skerta starfsorku og öryrkja getur hún hins vegar haft afgerandi áhrif. Menntun er lykill að atvinnuþátttöku Fyrir fólk með skerta starfsorku er aðgengi að menntun ekki aðeins spurning um persónulegan metnað heldur samfélagslega þátttöku og efnahagslegt sjálfstæði. Nám eykur líkur á atvinnu, styrkir stöðu á vinnumarkaði, sérstaklega fyrir fólk með skerta starfsgetu sem getur ekki sinnt líkamlega erfiðum stöfum og getur verið lykill að því að komast úr langvarandi tekjulágri stöðu. Það er því þversagnakennt að á sama tíma og samfélagið talar fyrir aukinni virkni og þátttöku fólks með fötlun, séu fjárhagslegar hindranir auknar við skráningu í háskólanám. Hlutanám og lengri námstími – raunveruleiki margra Margir nemendur með skerta starfsorku eru ekki í fullu námi. Heilsufar, endurhæfing og sveiflur í starfsgetu gera það að verkum að námið dreifist yfir lengri tíma. Þau greiða því skrásetningargjöld í fleiri ár en aðrir áður en námi lýkur með prófgráðu. Núverandi afsláttur, 25%, tekur ekki nægjanlegt mið af þessum aðstæðum. Þegar gjöld hækka, hækkar heildarkostnaður náms því hlutfallslega meira fyrir þennan hóp. Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að margir sem lenda á örorku hafa þegar lokið námi eða starfsmenntun. Þegar heilsufar breytist geta þeir hins vegar ekki lengur starfað við það sem þeir menntuðu sig til og þurfa því að bæta við sig námi eða endurmennta sig til að eiga raunhæfa möguleika á vinnumarkaði. Á sama tíma missa margir tengsl við stéttarfélög þegar þeir hætta störfum og eiga því ekki lengur rétt á stuðningi úr náms- og starfsþróunarsjóðum þeirra. Þetta veldur því að fólk sem þarf hvað mest á endurmenntun að halda stendur frammi fyrir verulegum fjárhagslegum hindrunum við að hefja eða halda áfram námi. Áhrif á fjölskyldur og næstu kynslóð Hækkun skrásetningargjalda snertir ekki aðeins þá sem sjálfir stunda nám. Hún hefur áhrif á fjölskyldur þeirra og börn. Þegar fjárhagsleg byrði eykst, minnkar svigrúm foreldra með skerta starfsgetu til að styðja börn sín til náms og því væri æskilegt að börn öryrkja fengju einnig afslátt af skráningargjöldum til að jafna aðstöðu þeirra á við aðra. Ef börnum öryrkja er ekki hjálpað til að ganga menntaveginn aukast líkur á að þau neyðist til að fara snemma út á vinnumarkað í láglaunastörf sem eykur hættu á þau brenni út, missi heilsuna og endi á örorku. Þannig geta ákvarðanir sem teknar eru í dag haft áhrif á mennta- og atvinnutækifæri næstu kynslóðar. Jafnrétti til náms – grundvallargildi Íslenskt samfélag hefur lengi lagt áherslu á jafnt aðgengi að menntun óháð efnahag. Háskólanám á ekki að vera forréttindi þeirra efnameiri heldur raunhæfur kostur fyrir alla. Ef gjöld hækka án þess að mótvægisaðgerðir fylgi fyrir tekjulága og fatlaða nemendur er hætt við að við færumst í átt að stéttskiptara menntakerfi, þar sem fjárhagur ræður ferðinni fremur en hæfni og vilji. Hvað þarf að gera? Málefnahópur ÖBÍ um atvinnu- og menntamál telur mikilvægt að: Endurskoða ákvörðun um hækkun skrásetningargjalda. Auka afslátt fyrir öryrkja og fólk með skerta starfsorku. Skoða sértækt fyrirkomulag fyrir nemendur í hlutanámi eða með lengri námstíma vegna heilsufars. Samfélag sem vill raunverulega auka atvinnuþátttöku og sjálfstæði fatlaðs fólks verður að tryggja raunverulegt aðgengi að menntun. Fjárhagslegar hindranir eru ekki hlutlausar, þær hafa mismunandi áhrif eftir stöðu fólks. Spurningin er einföld: Viljum við halda áfram að byggja upp samfélag þar sem menntun er sameiginleg fjárfesting í framtíð sem felur í sér aukinn jöfnuð eða leyfa því að þróast í átt að aukinni mismunun? Höfundur er formaður atvinnu – og menntamálahóps ÖBÍ réttindasamtaka og Gigtarfélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Málefni fatlaðs fólks Skóla- og menntamál Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar