Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 21. apríl 2026 17:00 Woodman þakkar fyrir sig eftir fínustu frammistöðu gegn Everton um helgina. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Allt stefnir í að Freddie Woodman, þriðji markvörður Liverpool, byrji í fyrsta sinn fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Hann muni gera það gegn uppeldisfélaginu Crystal Palace.
Woodman steig inn þegar Georgíumaðurinn Giorgi Mamardashvili fór meiddur af velli í 2-1 sigri á Everton um helgina. Hann hélt markinu hreinu þær 40 mínútur sem hann spilaði. Mamardashvili verður frá í um tvær vikur vegna skurðar sem hann hlaut í leiknum og Alisson Becker er þegar frá vegna meiðsla. Woodman mun því líklega byrja milli stanganna þegar Liverpool mætir Crystal Palace um helgina og Woodman því byrja leik fyrir liðið í fyrsta sinn í deildinni. Þessi enski 29 ára markvörður byrjaði að vísu leik í enska deildabikarnum, sem var einmitt gegn Crystal Palace, fyrir áramót en sá leikur tapaðist 3-0. Hann þótti nokkuð öruggur þegar hann steig inn um helgina, sér í lagi í ljósi þess að hann kom óvænt inn á. „Þetta var stressandi, ef ég á að vera hreinskilinn. En ég held að taugarnar hvetji mann áfram, viljinn til að gera vel og bregðast ekki öðrum. Dagleg vinna síðustu átta mánuðina hefur farið í þetta eina augnablik,“ segir Woodman. Woodman er ekki á meðal þekktari markvarða Englands. Hann er 29 ára gamall og náði að spila níu leiki fyrir Newcastle United á milli þess sem hann fór á lán til liða á við Hartlepool, Crawley, Swansea og Bournemouth í ensku neðri deildunum og Aberdeen og Kilmarnock í Skotlandi. Hann festi sig í sessi hjá Preston þar sem hann spilaði 138 leiki frá 2022 til 2026 en gekk svo í raðir Liverpool í sumar. Woodman hóf feril sinn hjá Newcastle sem leikmaður en hefur alla tíð verið stuðningsmaður Crystal Palace. Það væri honum draumur að byrja sinn fyrsta leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni gegn þeim blárauðu. „Það væri óraunverulegt og ótrúlegt að spila annan leik fyrir Liverpool í úrvalsdeildinni. Ég ólst upp við að styðja Palace, var boltastrákur á leikjum og spilaði gegn þeim í deildabikarnum í vetur,“ „Það gerist vonandi. Ég vil að Giorgi nái sér og líka Ali, sem er besti markvörður heims, ég vil að hann jafni sig. Við sjáum hvað gerist á laugardaginn. Ég mun sinna mínum æfingum í vikunni og undirbúa mig fyrir það að spila leikinn,“ segir Woodman.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Golf Súr endir á Meistaradeildarkvöldi Hákonar og Lille Fótbolti Haaland sýndi enga miskunn og sótti stigin þrjú í Portúgal Fótbolti Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Enski boltinn „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Gjafir Inter urðu þeim að falli gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Sjá meira