Glódís Perla þýskur meistari fjórða árið í röð Aron Guðmundsson skrifar 22. apríl 2026 17:56 Glódís Perla fagnar hér marki sínu gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu á dögunum. Vísir/Getty Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern Munchen, varð í dag þýskur meistari fjórða árið í röð með sínu liði.
Þetta varð ljóst eftir leik liðsins gegn Union Berlin á útivelli í dag sem lauk með 2-3 sigri Bayern Munchen. Enn eru fjórar umferðir eftir af þýsku úrvalsdeildinni en sigur Bayern í dag sér til þess að ekkert annað lið á tölfræðilegan möguleika á því að hrifsa toppsæti deildarinnar af Glódísi og hennar liðsfélögum. Frábær árangur hjá íslenska landsliðsfyrirliðanum sem er leiðtoginn í liði Bayern Munchen, einu besta félagsliði í heimi. Um fjórða Þýskalandsmeistaratitil Glódísar Perlu er að ræða, þann fjórða í röð hjá Bayern og á liðið möguleika á því að eiga enn betra tímabil og vinna þrennuna. Bayern er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu þar sem að framundan er einvígi gegn Barcelona og þá mætir liðið Wolfsburg í úrslitaleik þýska bikarsins þann 14.maí næstkomandi. Glódís að eiga viðburðaríka daga en á laugardaginn síðastliðinn varð hún leikjahæsta landsliðskona Íslands í fótbolta frá upphafi er hún sló met Söru Bjarkar Gunnarsdóttur með því að spila sinn 146. A-landsleik þegar að Ísland tók á móti Evrópumeisturum Englands í Þjóðadeild UEFA. Auk þess að hafa unnið Þýskalandsmeistaratitilinn fjórum sinnum hefur Glódís einnig orðið bikarmeistari einu sinni með Bayern Munchen og unnið þýska ofurbikarinn í tvígang. Þá eru ekki upptaldir titlarnir sem hún vann sem leikmaður hér heima í efstu deild sem og með Rosengard í Svíþjóð. Yfirburðir Bayern Munchen í þýsku deildinni verið miklir á yfirstandandi tímabili. Af þeim 22 leikjum sem liðið hefur spilað hafa tuttugu og einn unnist og einu sinni þurft að sætta sig við jafntefli. Möguleikinn á því að fara taplausar í gegnum tímabilið því enn möguleiki fyrir leikmenn Bayern Munchen.
Þýski boltinn Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fleiri fréttir Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Leik lokið: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjá meira