Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. apríl 2026 12:01 Hákon til vinstri á hótelinu í Búdapest. Hvarf Íslendings í Búdapest í Ungverjalandi er komið inn á borð alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra. Rannsókn málsins er á grunnstigi en maðurinn hvarf sporlaust fyrir um tveimur vikum síðan.
Hinn 53 ára gamli Hákon Þór Elmers hvarf í Búdapest í Ungverjalandi laugardagskvöldið 11. apríl en hvorki hefur sést tangur né tetur af honum síðan hann steig inn í strætisvagn við flugvöll í Búdapest það kvöld. Sonur hans Aron Freyr Elmers ræddi málið við Vísi í gær og sagði fjölskyldu Hákonar afar áhyggjufulla. Hákon hafi dvalið í Búdapest síðustu fjóra mánuði og átt flug heim til Íslands þennan dag. Að sögn Arons hefur faðir hans undanfarna mánuði verið á ferðalagi en þau áform hafi komið flatt upp á fjölskyldu hans og það ekki verið honum líkt að skipuleggja slíkt ferðalag. Ekki sé hægt að ná í Hákon símleiðis en Aron sagði við Vísi að íslensk lögregla skoði nú GPS gögn og hvort finna megi föður hans þannig. Þá ræddi Vísir við hótelstarfsmann sem sagði starfsfólk þekkja vel til Hákonar enda hafi hann dvalið þar undanfarna mánuði. Starfsmaðurinn sagði að þegar Hákon hefði yfirgefið hótelið á laugardegi fyrir um tveimur vikum síðan hafi hann virst illa áttaður. Silvía Llorens Izaguirre aðstoðaryfirlögregluþjónn og deildarstjóri alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra staðfestir að hvarf Hákonar sé til rannsóknar. „Ég get staðfest að málið er á okkar borði og kom inn til okkar í síðustu viku. Er einhver grunur um saknæma háttsemi í málinu? Eins og staðan er í dag virðist svo ekki vera.“ Mál líkt og þessi séu alltaf flókin. „Og alltaf erfið og þeim fylgir ákveðið verklag sem við förum eftir. Svo þurfum við bara að sjá hvert rannsóknin leiðir okkur. En hún er unnin með ungversku lögreglunni og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.“ Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Ungverjaland Lögreglumál Íslendingar erlendis Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald Lögmenn fagna niðurstöðu EFTA-dómstólsins Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Sjá meira