Gjörsamlega búinn á því eftir að hafa prófað nýjasta æðið Stefán Árni Pálsson skrifar 24. apríl 2026 12:01 Tómas fór yfir strikið hjá sér persónulega í ræktinni. Hvað er eiginlega Hyrox? Fréttamaðurinn Tómas Arnar prófaði þetta nýjasta æði á eigin skinni með misjöfnum árangri í Íslandi í dag á Sýn í vikunni.
Íslendingar virðast flykkjast til útlanda til að taka þátt í Hyrox-keppnum og birta af því fjöldann allan af myndskeiðum og myndum á samfélagsmiðlum. Tómas ræddi við tvo iðkendur sem tóku þátt í slíkri keppni. Að þeirra sögn gátu þær ekki gengið í tvo daga eftir mótið. „Þetta er nýja æðið bara um allan heim. Hyrox er blanda af kílómetrahlaupi og átta mismunandi æfingastöðvum á milli hlaupa. Það eru átta hlaup og átta stöðvar,“ segir Evert Víglundsson, eigandi Crossfit Reykjavíkur. „Galdurinn er að þjálfa sig upp í að geta verið á ákveðnum hraða án þess að mynda það mikla sýru að þú sért ekki að endurnýta hana. Ég er búinn að fara nokkrum sinnum út í heim að keppa í svona alþjóðlegum keppnum. Á síðasta ári voru 650.000 manns sem að kepptu í Hyrox keppnum um allan heim. Þetta er á fleiri og fleiri stöðum um allan heim hverja einustu helgi. Það er bara allt frá krökkum og upp í ömmur og afa. Hver bara gerir þetta með sínu nefi, á sínum hraða,“ segir Evert. Sjá má innslag Tómasar úr Íslandi í dag hér að neðan: Elskar fjölbreytileikann „Ég byrjaði í ágúst í fyrra. Ég var í annarri íþrótt og missti hana út af meiðslum og svo var þjálfari hér sem hafði samband við mig og bauð mér að prófa og ég hélt ég ætti ekkert í þetta. En ég prófaði og ég fékk bara algjöra dellu og ég bara get ekki hætt,“ segir Hekla Sif Magnúsdóttir iðkandi í Hyrox. Hekla og Margrét létu Tómas finna fyrir því. „Ég hef ekkert verið að æfa beint Hyrox en ég mæti stundum á og til á æfingar og ég elska fjölbreytileikann. Þannig að já, ég er alveg búin að vera lengi í þessu og búin að keppa tvisvar,“ segir Margrét Lilja Burrell sem stundar Hyrox. Tómas Arnar fékk sjálfur að prófa Hyrox og má með sanni segja að það hafi gengið upp og niður, enda erfitt eins og sjá má í klippunni að ofan og meðfylgjandi myndum.
Ísland í dag Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira