Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Valur Páll Eiríksson skrifar 25. apríl 2026 09:02 Fowler segir óþægilegt að tala um andlát Jota og leikmenn bregðist á mismunandi hátt við áföllum. Vísir/Getty Robbie Fowler kann illa við að ræða andlát Diogo Jota og áhrif þess á spilamennsku Liverpool á þessari leiktíð. Hann segir þann sorglega atburð gjarnan nýttan á slæman hátt.
Fowler var til viðtals hjá Sýn Sport á dögunum og fór í saumana á vandræðum Liverpool á leiktíðinni. Liverpool er úr leik í öllum bikarkeppnum og hefur gengið illa í titilvörn sinni í ensku úrvalsdeildinni. Varla er hægt að ræða gengið án þess að snerta á skyndilegu fráfalli Diogo Jota, leikmanns Liverpool, í sumar. Aðspurður um áhrif þess á leikmannahópinn og gengið segir Fowler: „Þetta hefur haft mikil áhrif. Mér þykir óþægilegt að ræða þetta því það er reglulega notað sem prik til að berja á liði Liverpool. Það sé nýtt sem afsökun fyrir því að liðið vinni ekki.“ Það sé því ekki gott að stuðningsmenn Liverpool nýti það til að afsaka leikmenn, þar sem þeir þekki ekki raunverulega hvað gangi á hjá leikmönnum í sorgarferlinu og hvaða áhrif fráfallið raunverulega hafi. Það geti snúist upp í andstöðu sína og að stuðningsmenn annarra liða grípi þá afsökun, ef slíka skal kalla, sem tækifæri til að gagnrýna leikmenn Liverpool og stuðningsmenn þess. „Við höfum öll, á okkar æviskeiði, orðið fyrir áföllum og misst ástvini. Það hefur mismunandi áhrif á fólk, fólk er misjafnt. En innan fótbolta verður til ákveðin fjölskyldustemning þó ekki sé um að ræða blóðtengsl. Það myndast mikil tengsl á milli liðsfélaga og þegar svona áfall dynur á innan slíks umhverfis geta áhrifin orðið mikil,“ segir Fowler. „Ég ætla ekki að segja hvaða áhrif þetta hefur á leikmenn. En þeir mæta á æfingasvæðið á hverjum degi og sjá myndir af Diogo eða sæti hans í klefanum. Ég held að þeir fari ekki í gegnum einn dag þar sem þeir hugsa ekki til hans. Ég er viss um að þetta hafi slæm áhrif á frammistöðuna,“ „En ég vil síður fara of djúpt í það vegna þess að fólk utan félagsins notar það sem þessa afsökun fyrir skorts á frammistöðu og það er almennt ekki mjög fallega gert,“ segir Fowler. Viðtalið við Fowler má sjá í heild í spilaranum efst. Umræðan um Jota hefst eftir um 10 mínútur og 30 sekúndur. Einnig má hlusta á það í Tal-spilaranum að ofan sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum í þættinum Besta sætið.
Liverpool FC Andlát Diogo Jota Enski boltinn Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira