Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Aron Guðmundsson skrifar 25. apríl 2026 09:31 Daniel Badu er þjálfari Vestra Vísir/Anton Brink Ætla má að einhverjir hafi rekið upp stór augu þegar greint var frá ráðningu Daniel Badu í starf þjálfara Vestra og það eftir súrsætt tímabil hjá liðinu sem varð bikarmeistari og tryggði sér Evrópusæti en féll úr Bestu deildinni. Daniel tekur við liðinu fyrir sögulegt tímabil og ætlar að koma því aftur upp í efstu deild.
Daniel er öllum hnútum kunnugur hjá liðinu eftir veru á Ísafirði sem leikmaður og seinna þjálfari. Það var ekki planið hans að hreiðra um sig á Íslandi en nú, sextán árum síðar, er hann hér enn. „Það hjálpar auðvitað mikið til að vita hvernig hlutirnir ganga fyrir sig í kringum félagið. Ég er á þeirri skoðun að engin önnur þjálfarastaða sé sambærileg þessari. Það hjálpar því til að skilja samhengi hlutanna hér,“ segir Daniel í samtali við Vísi. „Ég skil hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru hérna. Staðan getur verið pirrandi í kringum æfingaaðstöðu og ferðalög liðsins en ég vissi af þessum krefjandi aðstæðum og sömuleiðis þekkir fólkið í kringum félagið mig vel. Það hjálpar til.“ Eitt tímabil varð að mörgum árum Daniel kom fyrst hingað til lands árið 2010 og gekk í raðir Njarðvíkur sem leikmaður, nokkrum áður síðar varð hann leikmaður BÍ/Bolungarvíkur sem nú er Vestri eftir stopp hjá Magna á Grenivík. Daniel Badu í leik með Vestra gegn Þór Akureyri á sínum tíma sem leikmaðurMynd: Vestri Á Ísafirði hefur Daniel nú verið í yfir áratug og er nú orðinn fjölskyldumaður. „Þegar að ég kom hingað fyrst vildi ég bara spila fótbolta og naut mín vel. Var hluti af skemmtilegu liði og kunni alltaf vel við mig hér. Eitt tímabil varð að tveimur og eftir því sem leið á leið mér alltaf meira eins og heima hjá mér. Þetta var ekki planið en svona er lífið. Núna á ég mína fjölskyldu hér, konu og börn. Allir ánægðir.“ Efast ekki um sjálfan sig Miklar breytingar hafa átt sér stað á liði Vestra sem náði stærsta afreki í sögu félagsins undir stjórn Davíðs Smára Lamude á síðasta tímabili með því að verða bikarmeistari og tryggja sér Evrópusæti. Fall úr Bestu deildinni varð hins vegar raunin og því hefur Vestri leik í Lengjudeildinni í dag gegn Grindavík. Ráðning Daniels í stöðu þjálfara Vestra kom mörgum á óvart en hann er staðráðinn í að sanna sig. Daniel Badu var aðstoðarþjálfari Davíðs Smára Lamude á fyrsta tímabili þess síðarnefnda með VestraMynd: Vestri „Fólk þekkir ekki mikið til mín sem þjálfara. Ég hóf þjálfaraferil minn í raun nítján ára þegar að ég byrjaði að þjálfa yngri flokka heima á Englandi. Mín geta til að þjálfa er ekki eitthvað sem ég efast um. Ég tel mig reynslumikinn þjálfara á æfingasvæðinu. Auðvitað er svona þjálfarastaða öðruvísi. Ég er að læra nýja hluti á hverjum degi, bæta mig á hverjum degi. Vestri hefur misst mikið af leikmönnum frá síðasta tímabili. Við erum að halda inn í tímabil þar sem við ætlum okkur að vera samkeppnishæfir í deildinni, bikarnum og í Evrópu. Þetta verður erfitt og krefjandi en frábær reynsla fyrir mig sem þjálfara. Ég mun bara þurfa að undirbúa mig vel, vera skipulagður og aðlaga mig að þeim hlutum sem þarf að aðlaga sig að. Þetta verður ekki auðvelt en ég tel mig tilbúinn í þetta.“ Þrátt fyrir að margir lykilmenn hafi horfið úr liði Vestra milli tímabila er Súðvíkingurinn og fyrirliðinn Elmar Atli Garðarsson enn til staðar. Vísir/Hulda Margrét Gæðin til staðar Daníel setur stefnuna aftur upp í Bestu deildina á komandi tímabili en Vestri hefur leik í Lengjudeildinni á heimavelli í dag gegn Grindavík. Imran Mehanovic er einn af nýju leikmönnunum í liði VestraMynd: Vestri „Ef verðum ekki í Bestu deildinni á næsta tímabili verð ég mjög vonsvikinn. Ég tel okkur vera með gott lið, með gæðin innanborðs til þess að ná því. Það er markmiðið. Ég sé merki þess að við séum klárir í að ná því markmiði. En nú snýst þetta bara um það hversu snöggir við verðum að ná því gæðastigi á æfingum. Lengjudeildin er erfið deild. Allir leikir verða erfiðir. Við erum ekki alveg komnir á þann stað sem ég vildi að við værum á núna en við erum að leggja hart að okkur til þess að ná þeim stað sem við viljum vera á. Ég vona að í lok tímabils förum við að undirbúa okkur fyrir Bestu deildina. Ef við höldum áfram á þessu skriði er aðeins tímaspursmál þar til við verðum á þeim stað sem við viljum vera á.“ Skeður ekki á hverju ári Sem ríkjandi bikarmeistari hér heima tekur Vestri þátt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins á komandi tímabili. Liðið mætir til leiks í fyrstu umferð undankeppni Evrópudeildarinnar. Elmar Atli Garðarsson lyftir hér bikarnum eftir frækinn sigur Vestra á Val í úrslitaleik Mjólkurbikarsins á síðasta tímabili. Sigurinn sem varð til þess að Vestri á nú sæti í undankeppni Evrópudeildarinnar.vísir / ernir „Þetta er mjög spennandi. Eitthvað sem við verðum að gera okkur klára í og við nálgumst tímabilið þannig að þegar kemur að þessum Evrópuleikjum viljum við vera á góðum stað til þess að standa okkur vel. Þangað til verðum við að einblína á tímabilið hér heima en við erum að undirbúa okkur fyrir Evrópukeppnina á góðan hátt. Við verðum að bera virðingu fyrir því að þetta skeður ekki á hverju ári. Að við fáum svona tækifæri. Lykillinn er að standa sig vel í þessum mikilvægu leikjum sem framundan eru fram að Evrópukeppninni. Æfa vel.“ Stemning hjá Vestramönnum sem eru á leið í Evrópukeppnivísir / ernir „En hvað sem verður þá er þetta tækifæri til að skrifa söguna. Þannig nálgast ég þetta. Jafnvel þó þetta verði kannski eins og Davíð á móti Golíat þá verður þú bara að yfirstíga þá hindrun. Það ríkir mikil spenna og jákvæðni fyrir þessu þrátt fyrir að ég hafi ekki leyft mér að dreyma um þetta hingað til. Þegar að dregið verður er ljóst að þetta verður raunverulegra.“
Vestri Lengjudeild karla Mest lesið Sláandi ofbeldi knattspyrnukonu í miðjum leik Fótbolti Sonur Kristófers og Guðrúnar er bæði Acox og Guðjohnsen Körfubolti Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Íslenski boltinn Hleypur yfir alla Alpana á mettíma Sport „Stærstu fréttir ferilsins“ Sport Svakaleg endurkoma Joshua í fyrsta bardaga hans eftir bílslysið Sport Fjórir táningar í fyrsta byrjunarliði Iraola hjá Liverpool Enski boltinn Óvæntasta stjarna HM fann sér nýtt félag Fótbolti Haaland kyndir undir Haaland-æði á samfélagsmiðlum Fótbolti Stjóri Tottenham segir óánægðum leikmönnum að yfirgefa félagið Enski boltinn Fleiri fréttir Aron Einar spilar ekki fleiri leiki með Þór í sumar Í skýjunum eftir sögulegan sigur: „Þetta var dýrðardagur“ Var strax sannfærð: „Bjóst eiginlega við að þetta myndi vera svona“ Uppgjörið: Fram - Grindavík/Njarðvík 0-3 | Í bikarúrslit í fyrsta sinn Skotarnir staðfesta að Víkingur hafi keypt íslensku landsliðskonuna Fyrsti sigur ÍR-inga síðan á Þjóðhátíðardeginum Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Tvö mörk á tveimur mínútum á elleftu stundu og Grótta bjargaði stigi Skoruðu fimm í Breiðholtinu og fóru upp í annað sætið Kaupa Conteh frá Stjörnunni „Ótrúlega spennandi sóknarmaður“ Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Sjá meira