„Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. apríl 2026 13:43 Glæsilegur hópur stillti sér upp við setningu plokkdagsins. Vísir/Viktor Freyr Stóri plokkdagurinn er haldinn um allt land í dag í níunda skiptið. Skipuleggjandi hvetur landsmenn um allt land til að drífa sig út að týna rusl og senda það þangað sem það á heima.
Stóri Plokkdagurinn er fyrir löngu orðinn fastur liður í vorinu en hann hefur verið haldinn árlega síðan 2018. Rótarýhreyfingin á Íslandi stendur að skipulagningu en opnunarviðburður hófst í morgun við Krónuna á Akrabraut í Garðabæ. Þar setti Björn Skúlason forsetamaki daginn formlega og hóf opnunarplokkið. Einar Bárðason skipuleggjandi segir daginn byrja vel. „Honum hefur heldur betur vaxið fiskur um hrygg undanfarin ár. Við settum daginn núna hérna við Krónuna á Akrabraut og við erum að plokka hérna Arnarnesveginn á milli Kópavogs og Garðabæjar. Jón Karl Ólafsson setti daginn hann ásamt Birni Skúlasyni, forsetamaka, fyrir hönd Rótarýumdæmisins,“ segir Einar. „Ég held að hér séu svona 40-50 manns að plokka. Og það sem að hefur gerst alla vega þessa helgi, sérstaklega ánægjulega til þess er að það voru fullt af einhvers konar upphitunarviðburðum í gær og ég held ég hafi aldrei séð eins mikið magn af skipulögðum viðburðum og fyrir þennan plokkdag. Rótarýhreyfingin út um allt land er að skipuleggja í ofanálag fullt af viðburðum. Þannig að þetta er alveg frábær dagur.“ Einar segir ekki of seint fyrir fólk að taka þátt og segir hvern sem er geta farið út að plokka rusl. Það sé auk þess frábær heilsubót. Plokkdagurinn hafi fyrir löngu fest sig í sessi og fari hvergi en hægt er að nálgast allar upplýsingar um viðburði á heimasíðu verkefnisins. „Stóri plokkdagurinn er í raun og veru ekki bara risavaxið hreinsunarátak í upphafi sumars heldur er þetta líka bara áminning og vitundarvakning um það að við eigum að ganga betur um. Við þurfum að ganga betur um, við þurfum að gæta betur að því sorpi sem búið er að koma fyrir í tunnum og tönkum hér og þar, að það fari ekki aftur út í umferðina. Og eins og ég hef sagt í þessi átta ár sem við erum búin að vera að vasast í þessu: Allt sorp á skilið vistun á viðeigandi stofnun og hana nú.“ Jón Karl Ólafsson setti daginn hann ásamt Birni Skúlasyni.Vísir/Viktor Freyr Skvísurnar í Ungfrú Ísland létu sjá sig og Sigga Ózk nýkrýnd Ungfrú Ísland að sjálfsögðu þar á meðal.Vísir/Viktor Freyr Bjössi var ekki lengi að hefjast handa.Vísir/Viktor Freyr Einar Bárða hélt mannskapnum við efnið og var í stuði.Vísir/Viktor Freyr Plokkað. Vísir/Viktor Freyr Og plokkað.Vísir/Viktor Freyr
Tímamót Sorphirða Garðabær Umhverfismál Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning Sjálfið: Hvers vegna finnst okkur við gera allt best sjálf? Áskorun Fleiri fréttir Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Sjá meira