Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 27. apríl 2026 12:02 Saga Sig er viðmælandi í Litlu hlutunum. Elísabet Blöndal „Ég hef mikla þörf fyrir það að segja sögur og ætlaði alltaf að verða rithöfundur. Ég elska bókmenntir og þegar ég var tíu ára fékk ég verðlaun frá forseta Íslands því ég var búin að lesa allt bókasafnið,“ segir listakonan Saga Sig en hún er viðmælandi í fyrsta þætti af Litlu hlutunum með Kára Sverris.
Hér má sjá viðtalið við Sögu Sig: Saga ólst upp úti á landi og bjó meðal annars í Skálholti og á Þingvöllum. „Svo kem ég fimmtán ára í Hagaskóla. Ég var sveitastelpa að koma úr einangrun í stórborgina og það hafði rosalega mótandi áhrif á mig. Að búa úti á landi í svona miklum tengslum við náttúruna var engu líkt, þetta var líka á tímum þar sem það voru engir samfélagsmiðlar og stundum komst maður ekki í tvær vikur í skólann út af svo miklum snjó. Það voru líka engar tómstundir í boði þannig maður þurfti að finna eigin leiki og leiðir.“ Kunni þúsund sinnum betur að meta Ísland Eftir að Saga útskrifaðist úr Verslunarskóla Íslands flutti hún til London að læra ljósmyndun. „Ég held að það hafi verið mjög mikilvægt og mótandi að flytja í stórborgina og dýpkaði mig mikið sem einstakling. Að búa þar fékk mann líka til að meta Ísland þúsund sinnum meira, eins og að geta verið með hita á húsinu og þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu. Ég er svo þakklát fyrir þennan tíma,“ segir Saga meðal annars í samtalinu við Kára. Fyrir henni er mikil fegurð í litlu hlutunum, sem hún segir jafnframt stóra því þeir skipti miklu máli. Saga er í sambúð með tónlistarmanninum Vilhelm Antoni Jónssyni og saman eiga þau soninn Hring en Saga á sömuleiðis tvo stjúpsyni sem Vilhelm á. „Litlu hlutirnir snúast að öllu sem tengist fjölskyldunni en við erum með þrjá stráka. Ég elska samverustundirnar og til dæmis bara það að fá mér kaffi með kærastanum í morgunsárið. Að sækja strákinn okkar í leikskólann og sjá hann brosa. Það eru litlu stóru hlutirnir í mínu lífi.“
Myndlist Menning Tíska og hönnun Bíó og sjónvarp Bretland Mest lesið Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Lífið Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Lífið „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Lífið Ellen verður að Dóru á ný Lífið Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás Lífið Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Menning Tala dýrsins 666 og Neró keisari Lífið Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Lífið „Var að syrgja pabba þegar mamma dó“ Lífið GDRN búin að eiga: „Sumarið mætti með litlu systur“ Lífið Fleiri fréttir Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Hatari hættir í Þjóðleikhúsinu og breytingar í Borgó „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira