Handbolti

Viktor varði fleiri en Nielsen í sigri í Frakk­landi

Sindri Sverrisson skrifar
Viktor Gísli Hallgrímsson fagnaði sigri í kvöld.
Viktor Gísli Hallgrímsson fagnaði sigri í kvöld. EPA/Johan Nilsson

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barcelona tóku stórt skref í átt að fjögurra liða úrslitahelginni í Köln, í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld.

Börsungar unnu í kvöld fyrri leik sinn við Nantes, á útivelli í Frakklandi, 32-30.

Þeir Viktor Gísli og Daninn Emil Nielsen skiptu leiknum á milli sín í marki Barcelona og varði Viktor 6 af 21 skoti sem hann fékk á sig en Nielsen 4 af 18. Viktor varði því 28,6% skota en Nielsen 22,2%.

Staðan í hálfleik var 19-18 fyrir Barcelona og liðið náði svo mest fjögurra marka forskoti í seinni hálfleiknum en endaði á að vinna með tveggja marka mun.

Aleix Gómez var markahæstur Barcelona með níu mörk en Kauldi Odriozola skoraði sex fyrir heimamenn.

Liðin mætast aftur í Barcelonaborg næsta miðvikudagskvöld.


Tengdar fréttir

Þrettán frá Gidsel en Bjarki og félagar fögnuðu

Stórleikur besta handboltamanns heims, Mathias Gidsel, dugði Füchse Berlín ekki til að vinna Veszprém í Ungverjalandi í dag, í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Gísli, Ómar og Elvar tóku stórt skref í átt til Kölnar

Magdeburg tókst stórt skref í átt að fjögurra liða úrslitahelginni í Köln þegar liðið vann Pick Szeged í Íslendingaslag í Ungverjalandi í kvöld, 35-28, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×