Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 14:50 Fjöldi ferðalanga sitja strand eftir að flugfélagið sendi frá sér tilkynninguna í morgun. Getty Bandaríska lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hefur hætt allri starfsemi og fellt öll skipulögð flug niður frá og með í dag, laugardaginn 2. maí. Í tilkynningu frá félaginu segir að hækkun olíuverðs og misheppnuð tilraun fyrirtækisins til að endurskipuleggja reksturinn hafi spilað inn í niðurlagninguna.
Lágfargjaldaferðalangar eru að öllum líkindum í óðaönn eftir að fréttirnar breiddust út en félagið, sem var á sínu 34. starfsári, bauð upp á flug innan Bandaríkjanna sem og til um fimmtíu alþjóðlegra áfangastaða, svo sem San Jósé í Kosta Ríka og Cartagena í Kólumbíu. „Það er með miklum trega sem Spirit Airlines hefur hafið niðurlagningu á alþjóðlegri starfsemi sinni, sem tekur gildi þegar í stað,“ birti flugfélagið á samfélagsmiðlum sínum í nótt. „Öllu flugi hefur verið aflýst og þjónustuver er ekki lengur tiltækt.“ Síðustu flug félagsins fóru í loftið í gærkvöldi, föstudaginn 1. maí, en í frétt sem birt var á The Washington Post segir að fjöldi annarra flugfélaga hafi þegar auglýst svokölluð „björgunarfargjöld“ eða sett þak á verð fyrir viðskiptavini hins gjaldþrota flugfélags. Sumir sitja uppi með ekki neitt Í tilkynningu Spirit segir að endurgreiðslur fyrir öll aflýst flug sem keypt voru á vefsvæði þess með kredit- eða debetkorti verði unnar sjálfkrafa. Flugfélagið sagði að viðskiptavinir sem bókuðu flug í gegnum ferðaskrifstofu ættu að hafa samband beint við þann þriðja aðila til að biðja um endurgreiðslu. Fyrir þá sem keyptu miða á annan hátt er staðan óljósari. Í tilkynningunni segir að bætur til viðskiptavina sem notuðu aðferðir eins og inneignarmiða, fluginneign eða vildarpunkta „verði ákveðnar síðar í gjaldþrotaskiptaferlinu“. Flugfélagið sagðist ekki geta endurgreitt farþegum „fyrir tilfallandi ferðakostnað sem tengist aflýstum ferðum“. Sömuleiðis er ekki lengur hægt að innleysa punkta né færa þá yfir til annars flugfélags eða vildarkerfis.
Tímamót Bandaríkin Flug Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira