Veður

Á­fram­haldandi norðan­átt og stöku él

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þó það sé enn nokkuð kalt eru skemmtiferðaskipin komin til landsins og ferðamennirnir með.
Þó það sé enn nokkuð kalt eru skemmtiferðaskipin komin til landsins og ferðamennirnir með. Vísir/Vilhelm

Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og stöku él, en bjart að mestu um landið vestanvert. Hiti verður á bilinu tvö til 10 stig að deginum, en í kringum frostmark norðaustanlands.

Í hugleiðingum veðurfræðings kemur svo fram að á morgun, mánudag, sé útlit fyrir áframhaldandi norðanátt með éljum um landið norðanvert. Strekkingsvindur verður um landið austanvert og svo gæti bætt í élin fyrir norðan um kvöldið. Veðurfræðingur segir hitatölurnar þá á niðurleið og að víða verði næturfrost.

Svo er útlit fyrir að þriðjudagurinn verði á svipuðum nótum, él fyrir norðan en að mestu bjartviðri syðra.

Nokkuð greiðfært er um landið allt en vegfarendur eru beðnir að athuga að mikið er um brotholur í vegum víðs vegar um landið og þarf því að aka með sérstakri gát. Þá eru sumir vegir á Vesturlandi og Vestfjörðum slæmir vegna aurbleytu. Hálkublettir eru á Fjarðarheiði. Nánar um færð á vef Vegagerðarinnar og veður á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag: Gengur í norðan 5-13 m/s með dálitlum éljum, en yfirleitt þurrt suðvestanlands. Hiti nálægt frostmarki að deginum, en að 7 stigum sunnan heiða. Bætir í élin um kvöldið.

Á þriðjudag: Norðan 5-13 og éljagangur, en þurrt að mestu sunnantil. Kólnar heldur, einkum fyrir norðan.

Á miðvikudag: Minnkandi norðlæg átt og dregur smám saman úr éljum. Bjart að mestu sunnanlands, en líkur á stöku éljum allra syðst. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag: Breytileg átt, þurrt að mestu og áfram svalt, en smáél austast.

Á föstudag: Breytileg átt og skýjað austantil, annars víða léttskýjað. Hiti svipaður.

Á laugardag: Útlit fyrir sunnanátt með vætu á vesturhelmingi landsins og hlýnandi veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×