Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Lovísa Arnardóttir skrifar 3. maí 2026 10:40 Lögreglan lokaði götu og fylgdist með þeim sem áttu leið í afmælið. Aðsend Enginn var handtekinn í eftirliti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við samkvæmi Hell‘s Angels í Auðbrekku í Kópavogi í gær. Lögregla lagði hald á eitt eggvopn og ætluð fíkniefni. Aðgerð lögreglunnar stóð í um sex klukkustundir. „
Við höfðum fregnir af samkomu í aðsetri þeirra í Auðbrekku í Kópavogi og það var sett upp ákveðið aðgerðaskipulag sem við höfum viðhaft áður í samkomu af þessu tagi,“ segir Árni Friðleifsson aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn hafi þannig lokað götunni að samkomustað og skoðað skilríki hjá öllum sem ætluðu í samkvæmið. „Það var leitað á fólki. Þetta var um fimm, sex tíma aðgerð. Það fannst eggvopn á einum aðila og ætluð fíkniefni á öðrum aðila.“ Árni segir málin hafa verið afgreidd með skýrslum á staðnum. „Allir sem ætluðu í samkvæmið fóru í það.“ Rík heimild til að fylgjast með Hann segir lögregluna hafa ríka heimild til að fylgjast með samtökum eins og Hell‘s Angels. „Lögreglan er með nokkuð öflugar heimildir til að fylgjast með svona samtökum, og það er gert svona,“ segir hann og að lögreglan fylgist sérstaklega með þegar þau fái vitneskju um eitthvað sérstakt í gangi. Í gær var haldið upp á fimmtán ára afmæli samtakanna á Íslandi. Fjallað var um sams konar aðgerðir lögreglunnar í september í fyrra. Þá voru þrír handteknir í samstilltum aðgerðum lögreglunnar, ríkislögreglustjóra og sérsveitar. Árni segir að eins og annars staðar hafi viðbrögð við aðgerðum lögreglunnar verið misvel tekið. „Á hverjum degi fáum við misjöfn viðbrögð frá fullt af fólki, í umferðarlagabrotum og við önnur afbrot. Þetta er ekkert öðruvísi. Stundum fáum við gleði og stundum ógleði. Allir sem fóru á þennan viðburð fengu að fara á viðburðinn og ég hef enga vitneskju um hvenær honum lauk eða hvort það hafi verið gaman eða ekki. Það er ekki lögreglunnar mál.“ Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot nafnlaust eða undir nafni hér.
Lögreglumál Kópavogur Tengdar fréttir Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Töluverður viðbúnaður lögreglu er við Auðbrekku í Kópavogi. Ekki er það í fyrsta skipti sem lögreglan hefur haft afskipti af fólki sem á þar leið um en síðast var það vegna hátíðarhalda vélhjólaklúbbsins Hells Angels. 2. maí 2026 17:54 Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Lögreglan hefur lokað fyrir umferð um Auðbrekku í Kópavogi í kvöld en þar voru einmitt þrír handteknir á samkomu Vítisengla fyrr í mánuðinum. 27. september 2025 21:16 Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum Fjöldi skipulagðra glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tæpum tíu árum. Þetta segir yfirmaður hjá Ríkislögreglustjóra en aukin umsvif og sýnileiki Hells Angels á Íslandi eru það sem varð til þess að lögregla ákvað að ráðast í aðgerðir um helgina. 15. september 2025 19:01 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Töluverður viðbúnaður lögreglu er við Auðbrekku í Kópavogi. Ekki er það í fyrsta skipti sem lögreglan hefur haft afskipti af fólki sem á þar leið um en síðast var það vegna hátíðarhalda vélhjólaklúbbsins Hells Angels. 2. maí 2026 17:54
Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla Lögreglan hefur lokað fyrir umferð um Auðbrekku í Kópavogi í kvöld en þar voru einmitt þrír handteknir á samkomu Vítisengla fyrr í mánuðinum. 27. september 2025 21:16
Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum Fjöldi skipulagðra glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tæpum tíu árum. Þetta segir yfirmaður hjá Ríkislögreglustjóra en aukin umsvif og sýnileiki Hells Angels á Íslandi eru það sem varð til þess að lögregla ákvað að ráðast í aðgerðir um helgina. 15. september 2025 19:01