Réttindabarátta fatlaðs fólks í 65 ár Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar 5. maí 2026 14:31 Í dag, á 65 ára afmæli ÖBÍ réttindasamtaka, er gott að staldra við og líta um öxl og fara yfir þann langa og oft á tíðum erfiða veg sem hefur verið farinn. Fyrir 65 árum var staða fatlaðs fólks á Íslandi önnur en hún er í dag. Réttindi voru ekki sjálfsögð og tækifæri langt frá því að vera jöfn. Enn meiri jaðarsetning og stofnanavæðing ríkti. Öryrkjabandalag Íslands varð til upp úr þörf – þörf fyrir sterka sameiginlega rödd, samtakamátt og skýra kröfu um að fatlað fólk væri fyrst og fremst fólk, sem ætti sömu mannréttindi og ófatlað fólk. Á þessum 65 árum hefur mikilvægur árangur náðst með sterkari lagastoð. ÖBÍ hefur staðið í fararbroddi í baráttu fatlaðs fólks á Íslandi og farið fram með skýra kröfu um viðurkenningu, öryggi og lífskilyrði ásamt því að leiða fram öfluga uppbyggingu sem studdi fólk til þátttöku, náms, vinnu og sjálfstæðis. Smám saman hefur sjónarhornið færst frá forsjárhyggju yfir í mannréttindamiðaða nálgun. ÖBÍ hefur háð mikilvæga réttindabaráttu fyrir dómstólum og vann mikilvæga sigra sem breytt hafa lífi fjölda fólks. Baráttunni má líkja við langhlaup, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi hvar sýnileiki, virðing og viðurkenning skipta öllu máli. Baráttan fyrir innleiðingu og framkvæmd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks markaði tímamót, en ÖBÍ hefur barist fyrir honum af fullum þunga allt frá tilurð hans. En hugmyndafræði samningsins vindur ofan af þeirri arfleið og menningu sem hefur verið viðhöfð í gegnum söguna um að fatlað fólk sé ekki hluti af samfélaginu, heldur sé einmitt órjúfanlegur hluti þess með öllum sínum fallega fjölbreytileika hvar mannleig reisn er uppistaða. Rétturinn til að taka eigin ákvarðanir, lifa sjálfstæðu lífi og vera fullgildur þátttakandi í samfélaginu hefði aldrei náðst án þrautseigju og hugrekkis kynslóða baráttufólks sem gafst aldrei upp. Samt sem áður vitum við að langhlaupinu lýkur seint ef aldrei. Enn býr fatlað fólk við fátækt, skort á viðeigandi aðlögun og þjónustu. Við þurfum stöðugt að minna á „ekkert um okkur án okkar“. Að því sögðu skiptir ÖBÍ jafn miklu máli í dag og við stofnun samtakanna. ÖBÍ er rödd, afl og snúningshjól réttlætis – samtök sem minna okkur stöðugt á að jafnrétti næst ekki af sjálfu sér. Við fögnum við öllu því sem hefur áunnist en horfum einnig fram á veginn. Með samstöðu, þekkingu og óbilandi trú á mannréttindi höldum við áfram. Til hamingju ÖBÍ með 65 ára baráttu – og áfram veginn. Höfundur er formaður ÖBÍ réttindasamtaka Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Alma Ýr Ingólfsdóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar