Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar 6. maí 2026 12:45 Við gangbrautir eru ýmist skilti af gangandi manni eða fullorðnum einstaklingi með barn. Engin skilti eru af vegfarendum á hjólum. Þessa dagana stendur yfir árveknisátak þar sem gulum reiðhjólum hefur verið stillt upp við gatnamót og gangbrautir til að vekja athygli á fjölgun slysa á reiðhjólafólki. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað. „Átakinu er ætlað að fá bílstjóra til að láta símann eiga sig, horfa í kringum sig, vera meðvitaðir um aðra í umferðinni, keyra á löglegum hraða, stoppa á gangbrautum og rauðum ljósum”, eins og segir í kynningartexta. Athygli vekur að átakinu er einungis beint að ökumönnum, ekki reiðhjólafólki eða öðrum sem bruna hjá á rafhlaupahjólum eða öðrum tvíhjólum. Umferðakilti gefa ekki til kynna að gangbrautir séu ætlaðir reiðhjólafólki og öðrum vegfarendum á tvíhjólum en samkvæmt umferðarlögum er það heimilt, að því gefnu að hjólandi fari ekki hraðar en sem nemur venjulegum gönguhraða. Tillitssemi þarf að vera gagnkvæm. Ökumenn nálgast gangbraut með það í hug að gangandi vegfarandi vilji fara yfir á 4-6 km hraða. Það gerist hins vegar margoft að vegfarendur á tvíhjólum, reiðhjóli eða rafhjóli, komi skyndilega á 15-30 km hraða og telji sig vera í rétti að fara yfir gangbrautina. Þetta skapar slysahættu. Að mínu mati sýnir þetta banvænt ósamræmi í annars vegar umferðarlögum og hins vegar hönnun umferðarskilta. Í umferðinni getur sekúndubrot skilið á milli lífs og dauða. Hjólandi einstaklingar verða ekki síður en ökumenn að fara gætilega við gangbrautir, helst að leiða hjólin yfir gangbrautir, og stjórnvöld þurfa að breyta umferðarskiltum til samræmis við umferðarlög, þannig að öllum sé ljóst að gangbrautir eru bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Slík skilti eru víða til í heiminum en skortir sárlega hér á landi til að auka umferðaröryggi. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Hjólreiðar Umferðaröryggi Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Við gangbrautir eru ýmist skilti af gangandi manni eða fullorðnum einstaklingi með barn. Engin skilti eru af vegfarendum á hjólum. Þessa dagana stendur yfir árveknisátak þar sem gulum reiðhjólum hefur verið stillt upp við gatnamót og gangbrautir til að vekja athygli á fjölgun slysa á reiðhjólafólki. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað. „Átakinu er ætlað að fá bílstjóra til að láta símann eiga sig, horfa í kringum sig, vera meðvitaðir um aðra í umferðinni, keyra á löglegum hraða, stoppa á gangbrautum og rauðum ljósum”, eins og segir í kynningartexta. Athygli vekur að átakinu er einungis beint að ökumönnum, ekki reiðhjólafólki eða öðrum sem bruna hjá á rafhlaupahjólum eða öðrum tvíhjólum. Umferðakilti gefa ekki til kynna að gangbrautir séu ætlaðir reiðhjólafólki og öðrum vegfarendum á tvíhjólum en samkvæmt umferðarlögum er það heimilt, að því gefnu að hjólandi fari ekki hraðar en sem nemur venjulegum gönguhraða. Tillitssemi þarf að vera gagnkvæm. Ökumenn nálgast gangbraut með það í hug að gangandi vegfarandi vilji fara yfir á 4-6 km hraða. Það gerist hins vegar margoft að vegfarendur á tvíhjólum, reiðhjóli eða rafhjóli, komi skyndilega á 15-30 km hraða og telji sig vera í rétti að fara yfir gangbrautina. Þetta skapar slysahættu. Að mínu mati sýnir þetta banvænt ósamræmi í annars vegar umferðarlögum og hins vegar hönnun umferðarskilta. Í umferðinni getur sekúndubrot skilið á milli lífs og dauða. Hjólandi einstaklingar verða ekki síður en ökumenn að fara gætilega við gangbrautir, helst að leiða hjólin yfir gangbrautir, og stjórnvöld þurfa að breyta umferðarskiltum til samræmis við umferðarlög, þannig að öllum sé ljóst að gangbrautir eru bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Slík skilti eru víða til í heiminum en skortir sárlega hér á landi til að auka umferðaröryggi. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar