Eldpiparshausar í átkeppni Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 6. maí 2026 14:02 Stjörnum prýdd dómnefnd á Eldpiparshátíðinni í Gamla bíói. Aðsend Það var líf og fjör í Gamla bíói á dögunum þegar fyrsta eldpiparshátíðin var haldin hérlendis. Íslenskir smáframleiðendur, handverksfólk og eldpiparhausar fylltu staðinn með gleði, spennu og ástríðu fyrir eldpipar.
Hátíðin byrjaði með fræðslu um ræktun eldpipars á Íslandi og útskýringar um hvernig Scoville skalinn virkar, sem er alþjóðlegur mælikvarði styrkleika mismunandi gerða eldpipars, frá Óla Finnssyni helsta eldpipar-ræktanda landsins. Bjartur Elí Friðþjófsson matreiðslumeistari og sigurvegari Sósu ársins 2026.Þórey Hafliðadóttir „Húsið fylltist þegar átkeppnin fór fram og voru þar ellefu hugrakkar sálir sem ákváðu að láta reyna á þolið. Tveir keppendur, Ignacia Russell kölluð Iggy og Máni Ólafsson fóru alla leið og kláruðu auðveldlega tólf umferðir af sísterkari eldpipar ásamt einni aukaumferð af öðrum sterkasta eldpipar í heimi, Carolina reaper. Úrslitaumferðin var þar af leiðandi hraðaumferð, þar sem keppandinn sem kláraði fyrst heila sæta papriku varð sigurvegari. Það var Máni Ólafsson sem bar sigur úr býtum og varð fyrsti sigurvegari átkeppninnar, hann stefnir að sjálfsögðu á að verja titillinn á næsta ári. Á hátíðinni gátu gestir smakkað tólf sterkar sósur sem kepptust um tvo titla, Sósa ársins 2026 og Sósu fólksins 2026. Þátttakendur voru blanda af áhugafólki, matreiðslumönnum og sósuframleiðendum. Öflug dómnefnd sá um að gefa ómerktum sósum stig og var það Bjartur Elí Friðþjófsson, matreiðslumeistari og sous chef á ÓX, sem fékk flest stigin frá dómnefndinni fyrir sósuna Universal Chef Sauce. Verðlaunagripurinn sem var veittur fyrir Sósu ársins var hannaður og gerður af Kristínu Jónu Þorsteinsdóttur handverkskonu og öðrum skipuleggjanda hátíðarinnar. Sósa fólksins var kosin af gestum hátíðarinnar og var það Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi KOMO veisluþjónustu sem sigraði með miklum yfirburðum,“ segir í fréttatilkynningu. Máni Ólafsson sem bar sigur úr býtum í átkeppninni. Þórey Hafliðadóttir Dómnefndina skipuðu Adam Helgason matgæðingur og frumkvöðull, Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir matreiðslumeistari og landsliðskokkur, Erpur Eyvindarson matgæðingur og eldpipar áhugamaður, Óli Finnsson garðyrkjufræðingur og eldpipar frumkvöðull, Rakel María Hjaltadóttir matgæðingur og líkamsræktarþjálfari og Sjöfn Þórðardóttir matgæðingur og fjölmiðlakona. Óli Finnsson garðyrkjumaður og eldpiparsfrumkvöðull. Þórey Hafliðadóttir Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi KOMO veisluþjónustu, sigurvegari Sósu fólksins 2026. Þórey Hafliðadóttir
Matur Samkvæmislífið Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Fleiri fréttir Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Sjá meira