Innlent

Loka­tölur í Sveitar­fé­laginu Horna­firði: Fram­sókn bætir við sig og meiri­hlutinn fallinn

Ritstjórn skrifar
Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
Ný bæjarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar. vísir/sara

Framsókn og stuðningsmenn bætir við sig manni frá síðustu kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi Kex framboðs tapa manni hvor í sveitarfélaginu Hornafirði. Miðflokkurinn fær einn mann.

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði eru 1.922 manns. Sjö fulltrúar eiga sæti í sveitarstjórninni.

Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og KEX-framboðið meirihluta og var Sigurjón Andrésson endurráðinn í embætti bæjarstjóra.

Í Sveitarfélaginu Hornafirði er meðal annars að finna Höfn.

Atkvæðin dreifðust þannig;

  • B listi - Framsókn og stuðningsmenn: 44,8% með 3 fulltrúa
  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn: 26% með 2 fulltrúa
  • K listi - Kex framboð: 13,5% með 1 fulltrúa
  • M listi - Miðflokkurinn: 15,8% með 1 fulltrúa.

Eftirfarandi náðu kjöri í bæjarstjórn:

  • Hjalti Þór Vignisson (B)
  • Ingibjörg Sveinsdóttir (B)
  • Björgvin Óskar Sigurjónsson (B)
  • Gauti Árnason (D)
  • Hjördís Edda Olgeirsdóttir (D)
  • Eyrún Fríða Árnadóttir (K)
  • Reynir Ásgeirsson (M)
Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Hornafirði eru 1.922 manns. Vísir


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur í Ár­borg

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Árborg eru 9.567 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Lokatölur úr Fjalla­byggð: Meirihlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Lokatölur í Suður­nesja­bæ: Samfylkingin stærst

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×