Fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól í Reykjavík Lovísa Arnardóttir skrifar 8. maí 2026 06:32 Við Laugardalslaug á að gera nýtt stæði fyrir rafhlaupahjól næst vegg Laugardalslaugar á svæði sem í dag eru hjólastæði. Hluta af hjólabogum verður hliðrað til. Vísir/Vilhelm Samþykkt var í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni að fjölga stæðum fyrir deilibíla og rafhlaupahjól frá stöðvalausum rafhlaupahjólaleigum. Í dag eru níu safnstæði en lagt er til að þeim verði fjölgað í tuttugu til þrjátíu og þau verði annars vegar fyrir rafhlaupahjól og hins vegar fyrir deilibíla.
Í tillögunni er lagt til að útbúið verði framkvæmdaplan fyrir næstu fimm árin fyrir 20-30 stæði á ári og að stærðir þeirra verði rýndar. Þá er lagt til að gerð verði stöðluð útfærsla sem hægt verði að aðlaga að hverri staðsetningu með viðeigandi merkingum. Í tillögunni er lagt til að endurgerð verði átta stæði fyrir deilismáfarartæki, eitt verði fært og að gerð verði ellefu ný. Einnig er lagt til að gerð verði níu deilibílastæði á átta stöðum, þar af sex í núverandi bílastæðum en þrjú á öðrum svæðum. Samtals er lagt til að vegna tillögunnar fækki bílastæðum í borgarlandi um sjö, en á móti bætist við eitt stæði vegna færslu stæðis fyrir deilismáfarartæki. Önnur stæði eru staðsett á umferðareyjum, grassvæðum, torgsvæðum og á aksturssvæðum sem hafa verið lokuð af. Gert er ráð fyrir að fyrstu stæðin verði sett upp í sumar og að verkið verði boðið út í maí. Kort sem sýnir núverandi staðsetningar og staðsetningar fyrir rafhlaupahjól og bíla. Reykjavíkurborg Staðsetningarnar sem eru lagðar til í tillögunni eru til dæmis strætóstöð í Fossvogi og í Lönguhlíð og við Kjarvalsstaði við grenndarstöð. Misjafnt er hvort aðeins sé gert ráð fyrir deilibílum eða rafhlaupahjólum í stæðið en við Kjarvalsstaði er til dæmis gert ráð fyrir báðu. Við sundlaugar og strætóstopp Þá er lagt til að slíkt stæði verði við Hlemm, á Skólavörðuholti, á bílaplani næst Frakkastíg og á Klapparstíg. Þá er gert ráð fyrir stæði fyrir deilismáfarartæki á Lækjartorgi og Ingólfstorgi og við Garðastræti. Þá er gert ráð fyrir slíku stæði í Sóltúni við Borgartún 30 og við World Class í Laugum og Laugardalslaug. Gert er ráð fyrir slíku stæði við Vesturbæjarlaug og við Grósku og á strætóstöð við Suðurlandsbraut. Þá er gert ráð fyrir stæði í Skeifunni og í Valshlíð. Einnig er gert ráð fyrir stæði við MR og á Laugavegi 59. Þá er gert ráð fyrir einu á Gömlu Hringbraut við strætóstöð. Bílastæðum í borgarlandinu verður fækkað um sjö til að búa til sérstök bílastæði fyrir deilibíla. Vísir/Vilhelm Ákall eftir fjölgun stæða Í greinargerð með tillögunni segir að talsvert ákall hafi verið eftir því að skilgreind verði sérstök stæði fyrir deilismáfarartæki, það er rafskútur og hjól sem hægt er að leigja til skamms tíma, þar sem bæði notendur geta gengið að rafskútum og/eða hjólum vísum og leigurnar geta staðsett hjól tilbúin til leigu. Nokkur slík stæði hafi verið merkt í borgarlandinu með einföldum yfirborðsmerkingum en vilji sé til að gefa slíkum stæðum aukið vægi, gera þau veglegri og fjölga þeim. Á Lækjartorgi á að endurgera stæði fyrir deilismáfarartæki. Vísir/Vilhelm Í greinargerð segir að leigurnar hafi í einhverjum tilfellum boðið upp á afslátt sé hjólum skilað á þessi stæði og að þeirra sögn hafi þetta gengið vel og vilji til að halda því áfram. Gerð hafi verið nokkuð ítarleg greining á því hvar eru heppilegar staðsetningar fyrir slík stæði og byggi tillögurnar á því. Þá segir í greinargerð að sama skapi sé vilji til að auka hlutdeild deilibíla, gera íbúum auðveldara að nálgast slíka þjónustu og auðvelda leigunum að bjóða upp á slíka þjónustu. Allnokkur fjöldi deilibíla sé í rekstri innan borgarinnar og það sé vilji til að bæta aðgengi að slíkri þjónustu. Stæðin eru kölluð deilistæði í tillögunni en þó tilgreint að það verði hluti verkhönnunar að skilgreina nafn á þessa þjónustu. Öll stæði vestan Elliðaáa Í greinargerð segir að gert verði ráð fyrir rafskútum á öllum staðsetningum en hjóli og bíl á sumum. Lagðar voru fram tvær bókanir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs frá fulltrúa Framsóknar, Aðalsteini Hauki Sverrissyni, og Mörtu Guðjónsdóttur, fulltrúa óháðra. „Fulltrúi Framsóknar lýsir ánægju sinni með þeirri vinnu sem snýr að því koma skipulagi á deilibílastæði og stæði fyrir rafhlaupahjól, sem er löngu orðin tímabær. Mikilvægt er að farið verið í þessar aðgerðir án þess að skera niður um of fjölda almennra bílastæða,“ segir Aðalsteinn í sinni bókun. Marta telur jákvætt að komið verði upp sérmerktum svæðum en vekur þó athygli á því að tillagan einskorðast við hverfi vestan Elliðaáa. „Ekki er gert ráð fyrir slíkum stæðum í eystri byggðum borgarinnar. Mikilvægt er að slíkum safnstæðum fyrir rafhlaupahjól verði komið upp í öllum hverfum borgarinnar en auðveldlega mætti koma slíkum stæðum fyrir við stoppistöðvar strætó,“ segir Marta.
Deilihagkerfi Rafhlaupahjól Reykjavík Samgöngur Umhverfismál Bílastæði Borgarstjórn Skipulag Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Umferðarslys við Nýbýlaveg í Kópavogi Gæsluvarðhald sonar þingmannsins aftur framlengt Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að svari sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Sjá meira