Hafnar því að hafa gengið nakinn um sameignina Lovísa Arnardóttir skrifar 7. maí 2026 13:41 Leigjandinn sagði baðið rygðað. Myndin er úr safni. Vísir/Getty Kærunefnd húsamála hafnaði nýlega kröfu leigjanda um að fyrrverandi leigusali hans myndi endurgreiða honum leigu og um að hann myndi greiða honum bætur vegna muna í hans eigu sem leigusalinn fargaði. Leigusalinn fékk ítrekaðar kvartanir vegna leigjandans, meðal annars vegna hegðunar og umgengni í sameiginlegu rými. Þar á hann til dæmis að hafa gengið um nakinn.
Leigjandinn hafði gert kröfu um að leigusalinn myndi endurgreiða honum 85 þúsund krónur í leigu og sömu fjárhæð í tryggingu. Þá krafðist hann bóta að fjárhæð 132.842 kr. vegna muna sem hann fargaði. Leigusalinn hafnaði kröfunum að undanskilinni kröfu um endurgreiðslu á tryggingu sem hann féllst á að endurgreiða. Í úrskurði kemur fram að nefndin telji að leigjandinn verði að bera hallann af því að hafa ekki skilað herberginu í samræmi við samkomulag. Þá hafi hann ekki sýnt fram á með sönnunargögnum að leigusalinn hafi fargað verðmætum eignum hans. Tímabundin leiga í húsnæði Í úrskurði kærunefndarinnar kemur fram að þeir höfðu gert ótímabundinn leigusamning frá 6. september 2022 um leigu á herbergi en tekist var á um leigu fyrir júnímánuð árið 2025 í húsnæði sem leigjandinn hafði verið fluttur í eftir kvartanir í öðru húsnæði. Leigjandinn hafði greitt fyrir mánuðinn en fór svo af landi brott og kom ekki aftur á umsömdum tíma til að tæma herbergið. Samkvæmt úrskurði átti hann að tæma herbergið fyrir 15. júní. Í sjónarmiðum leigusalans kemur fram að meðan á leigutímanum stóð hafi hann fengið ítrekaðar kvartanir frá öðrum leigjendum vegna mannsins sem hafi, meðal annars, lotið að því að hann hafi gengið um nakinn í sameiginlegum rýmum, sem hafi valdið öðrum leigjendum óþægindum og verið í andstöðu við reglur um nábýlisrétt. Hann hafi ítrekað þurft að hafa afskipti af honum vegna framkomu hans og umgengni og verið áminntur og gerð grein fyrir því að frekari brot eða kvartanir myndu leiða til uppsagnar leigusamningsins. Leigusalinn segist þannig ítrekað hafa sagt upp leigusamningi en ítrekað komið með afsakanir og sent skilaboð. Það hafi átt að bera hann út sumarið 2023 en hann hafi lofað betri umgengni og snyrtimennsku. Í kjölfarið hafi honum verið boðið að flytja í aðra íbúð með það að markmiði að koma til móts við hann. Þar hafi aftur á móti hafist sambærileg vandamál þar sem aðrir íbúar hafi orðið fyrir ónæði og óæskilegri framkomu. Við upphaf leigunnar þar hafi honum verið tilkynnt að um tímabundna ráðstöfun væri að ræða og að hann þyrfti að flytja út eigi síðar en 12.-15. júní, þar sem eignin væri seld og að það þyrfti að þrífa. Leigusalinn segir leigjandann hafa farið án þess að þrífa og hafa skilið eftir eigur og sorp. Eigur hans hafi verið fluttar í geymslu og sorpi hent. Hegðun annarra einnig ábótavant Í úrskurði segir leigjandinn hegðun annarra íbúa í húsinu ábótavant og að í öðru herberginu sem hann tók á leigu hafi verið mygla í eldhúsi, „ryðgað“ baðkar og fleira. Þar hafi einnig verið ónæði af öðrum íbúum sem hafi reykt og drukkið áfengi langt fram eftir nóttu og hlustað á háværa tónlist í tvær vikur í hverjum mánuði. Einn af þeim hafi ráðist á hann en hann varist því. Hann segir jafnframt að hann hafi ætlað að koma á tilsettum tíma til að tæma herbergið en hafi ekki getað það vegna tannaðgerðar sem hann fór í og vegna þess að hann þurfti að aðstoða föður sinn. Hann hafi beðið leigusalann um að geyma dót sitt en þegar hann kom svo til baka hafi hann séð einn af starfsmönnum leigusalans í fötunum hans. Hann hafi þurft á þeim að halda fyrir útskrift sína. Leigjandinn neitar því í úrskurði að hafa gengið nakinn um íbúðina, hann hafi aðeins einu sinni gleymt því að nota handklæði. Þá segir hann ekki hafa verið þörf á að þrífa mikið og að hann hafi verið búinn að flokka eigur og mat áður en hann yfirgaf landið. Hann hafi verið með mikið dót og ekki getað flutt það á einum degi. Kostnaður við þrif féll á leigusala Í niðurstöðu nefndarinnar kemur fram að þau hafi óskað eftir nánari upplýsingum um ferðir leigjandans. Hann hafi yfirgefið landið 4. júní og svo ekki náð að koma aftur fyrr en þann 5. júlí og þá vitjað eigna sinna. Leigulok hafi verið við upphaf júnímánaðar og vegna þess að hann hafi ekki verið búinn að tæma og þrífa hafi kostnaður fallið á leigusalann og telur nefndin að leigjandinn verði að bera hallann af því að skila herberginu ekki í samræmi við samkomulag og því er kröfu hans um endurgreiðslu leigu hafnað. Hvað varðar eigur hans segir nefndin að leigjandinn styðji kröfu sína ekki með neinum gögnum og því hafi ekki verið sýnt fram á að leigusalinn hafi fargað verðmætum eignum.
Úrskurðar- og kærunefndir Húsnæðismál Leigumarkaður Málefni fjölbýlishúsa Nágrannadeilur Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira