Vextir tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 7. maí 2026 13:59 Nanna Hermannsdóttir hagfræðingur er höfundur skýrslunnar. Vísir/Vilhelm Vextir námsmanna hafa tífaldast eftir að Menntasjóður námsmanna tók við af LÍN fyrir sex árum samkvæmt nýrri greiningu. Þá eru lánakjörin verri hér en að jafnaði á Norðurlöndum. Hlutfall námsmanna sem fær námsstuðning er einnig langlægst hér á landi og greiðslubyrði jafngreiðslulána mest íþyngjandi.
Landssamtök íslenskra stúdenta (LÍS) og BHM kynntu í hádeginu niðurstöður nýrrar greiningar á íslenska námslánakerfinu. Greiningin fjallar um afleiðingar nýs kerfis og Menntasjóðs námsmanna sem tók við af LÍN og var kynnt sem veruleg kjarabót fyrir stúdenta á sínum tíma. Samkvæmt skýrslunni kemur hins vegar fram að margfalt hærri vextir og skortur á sveigjanleika í kerfinu hafi gert íslensk námslán verri fyrir stúdenta en áður. Grefur undan markmiðum Niðurstöður greiningarinnar eru meðal annars að núverandi námslánakerfi grafi undan markmiðum atvinnustefnu Íslands og eigin lögbundna hlutverki sem „félagslegur jöfnunarsjóður“. Nanna Hermannsdóttir, hagfræðingur er skýrsluhöfundur. „Þrátt fyrir háleit markmið um að bæta stuðning við námsmenn, að nýta kerfið til þess að stuðla að áherslum stjórnvalda hvað varðar vinnumarkaðsmál og þarfir samfélgasins, þá vantaði mikið upp á greiningu á hvernig og hvort þessir þættir gætu virkað. Þrátt fyrir að það sé jákvætt að innleiða kerfi sem á að hafa skýra hvata þá er ómögulegt fyrir kerfið að hafa þessa hvata ef að jafn fáir taka námslán og raun ber vitni. Eins og er hafa aldrei verið færri námsmenn á námslánum, hlutfallslega. Það eru þrettán prósent nema við íslenska háskóla sem að taka námslán.“ Lögbundinn heildarendurskoðun laganna um Menntasjóðinn er framundan. Nú hafa orðið breytingar á vöxtunum. Hafa þær breytingar verið til góðs eða ills? „Þær hafa klárlega verið til ills. Það sem gerist er að vextir í gamla kerfinu eru lækkaðir í 0,4 prósent á sama tíma og innleiddir eru breytilegir vextir hjá Menntasjóðnum sem geta orðið allt að fjögur prósent og þeir hafa legið í því undanfarin ár. Sem þýðir að vaxtakjör námsmanna hafa tífaldast. Ég vona innilega að þessi vinna sem við sjáum fram á á næstu mánuðum geti orðið einhvers konar samstarfsverkefni á milli hagsmunaaðila og stjórnvalda,“ sagði Nanna Hermannsdóttir.
Hagsmunir stúdenta Vinnumarkaður Háskólar Skóla- og menntamál Lánamál Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent „Hún drap börnin“ Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Sjá meira