Vilja sinna löggæslu í Grímsey og Hrísey með drónum Kjartan Kjartansson skrifar 11. maí 2026 11:20 Þorpið á Grímsey. Lögregla er ekki með fasta viðveru þar og skoðar nú möguleikann að láta fjarstýrða dróna vakta eyjuna úr lofti. Egill Aðalsteinsson Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur hug á því að setja upp dróna í Hrísey og Grímsey til þess að sinna löggæslu. Drónar eru sagðir geta nýst vel á svo einangruðum stöðum þar sem löggæsla er ekki til staðar árið um kring.
Bæjarráð Akureyrarbæjar tók erindi frá Páleyju Borgþórsdóttur, lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, um drónana til skoðunar í síðustu viku. Lögreglustjórinn óskaði eftir því að bærinn taki þátt í verkefninu með því að kaupa flygildin. Áætlaður kostnaður er metinn á 3,7 milljónir króna á hvorri eyju, alls 7,4 milljónir króna í heildina. Inni í þeim kostnaði eru kaup á drónunum, leyfisgjöld fyrir hugbúnað og 4G-sendingarbúnaður. Lögreglustjórinn telur löggæsludróna sem sé fjarstýrt frá lögreglustöðvum gagnlega viðbót við löggæslumyndavélakerfið. Ef ráðist yrði í drónaverkefnið í Hrísey og Grímsey yrði fallið frá fyrir hugmyndum um að koma þar fyrir föstum löggæslumyndavélum. Tveir löggæsludrónar eru fyrir á Akureyri sem hluti af tilraunaverkefni sem bæjarráð samþykkti að taka þátt í síðasta haust. Lögreglustjórinn segir góða reynslu komna á notkun drónanna sem fyrsta viðbragð. Bæjarráð vísaði erindi lögreglustjórans um dróna í eyjunum tveimur til bæjarstjóra til áframhaldandi meðferðar.
Akureyri Grímsey Hrísey Lögreglan Flug Tengdar fréttir Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. 21. september 2025 07:03 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira
Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hyggst ráðast tilraunaverkefni til tveggja ára þar sem drónar verða notaðir og sendir á vettvang á stöðum í umdæminu þar sem löggæsla er ekki mönnuð allan sólarhringinn. 21. september 2025 07:03