Kannast þú við Tommy? Freyja Þórisdóttir skrifar 11. maí 2026 23:00 Þrátt fyrir að Tommy hafi verið um sautján ára þegar hann ferðaðist til Íslands þá eru þessar myndir þær nýjustu sem Íris og félagar hafa komist yfir. Var það bróðir Tommy sem sendi þeim þær. Aðsend Sakamál sem snýst um andlát sænsks sautján ára drengs hefur leitt rannsakendur til Íslands. Nú hafa verið birtar myndir og er óskað eftir öllum vísbendingum sem leitt gætu að uppljóstrun málsins. Íslandstengingin við málið er sú að þegar Tommy fannst látinn, árið 1966, fannst einnig kvittun frá Hótel Loftleiðum í vasa hans.
Blaðamaðurinn Íris Andradóttir vinnur fyrir norska sakamálaþáttinn „Åsted Norge“ og er hún ein þeirra sem reyna nú að komast að því hvað hinn sænski Tommy Plath, sem gekk einnig undir falska nafninu Anders Karlsson, var að gera á Íslandi stuttu áður en hann lést. Óupplýst mannslát gæti tengst Íslandi Frétt sem birtist í Alþýðublaðinu þann 30. ágúst árið 1966. Þar segir að ekki sé ljóst hvað olli andláti Tommy en að rannsóknarlögreglan á Íslandi finni hvorugt nafnið, Tommy né Anders, í gögnum um flug- og skipaferðir.Tímarit.is Tommy hvarf frá heimili sínu í Svíþjóð 11. eða 12. júlí árið 1966 og fannst látinn í skógi í Noregi um það bil mánuði síðar. Enn þann dag í dag hefur ekki tekist að komast að dánarorsök hans. Fjallað var um málið á sínum tíma í íslenskum fjölmiðlum. Ástæða þess að rannsóknin leiddi Írisi og félaga til Íslands er sú að þegar Tommy fannst látinn var kvittun frá Hótel Loftleiðum fundin í vasa hans. Hann hafði þá sennilega dvalið á hótelinu dagana 13.-15. júlí árið 1966 undir fölsku nafni, Anders Karlsson. „Við reynum nú að komast að því hvað hann var að gera á Íslandi og hvort einhver hafi séð hann eða hitt á þeim tíma. Allar upplýsingar geta skipt máli. Ef þú aðeins kannast við nafnið, hvort sem það er Tommy Plath eða Anders Karlsson, væru það líka áhugaverðar upplýsingar,“ segir í færslu Írisar. Vakti enga athygli En líkt og bent var á í athugasemd undir færslu Írisar virkar maðurinn á myndinni ekki mikið eldri en tólf eða þrettán ára. Í svari við því segir Íris myndirnar vera þær nýjustu sem þau eigi en að hann sé frekar ungur á þeim. Þá er fólk einnig að velta því fyrir sér í athugasemdunum hvernig svo ungum dreng tókst að ferðast án fullorðins aðila á milli landa og dvelja einn á hóteli án þess að neinum þætti það athugunarvert. Verða á landinu í næstu viku Íris segist aðallega hafa verið fengin með í þetta tiltekna verk vegna Íslandstengingarinnar. „Við erum að koma til landsins í næstu viku og það væri auðvitað frábært að geta hitt einhvern sem kannast við hann eða málið,“ segir hún í samtali við blaðamann og nefnir að meðal þess sem þau geri líklega sé að mynda en annars viti hún ekki nákvæmlega hvað þau muni gera hér á Íslandi. Íris segist vona að þau geti komist til botns í málinu en þá eru allar líkur á því að þáttur um það yrði sýndur í haust.Avisa Valdres Áður hefur þeim hjá „Åsted Norge“ tekist að leysa mál með mætti Facebook en þá hafði líki skolað á land í Vestur-Noregi. Á líkinu fannst eins konar lukkugripur sem leiddi til þess að hægt var að nafngreina manninn. „Mér skilst að það hafi verið Facebook-póstur sem leiddi til þess að fólk á Filippseyjum þekkti lukkugrip sem hann hafði fundist með. Svo var það samstarfskona mín sem fann út hver maðurinn var og þá var hægt að láta fjölskyldu hans vita og jarða hann undir nafni,“ segir Íris frá. Áhorfendurnir gríðarlega mikilvægir Þættirnir hafa nú verið sýndir í rúmt ár og eru með hálfa milljón áhorfenda „per þátt“ en þau vinna iðulega mál út frá ábendingum áhorfenda. „Annaðhvort rannsökum við mál sjálf eða fáum ábendingar um mál sem við sendum svo áfram á lögreglu,“ segir Íris en hún segist hafa að vissu leyti slysast í þetta ákveðna starf. Veistu hvaða Tommy var að gera á Íslandi? Kannast þú við málið? Sendu okkur ábendingu hér. „Ég er auðvitað blaðamaður í botn en það eru fáir svona þættir til og mér finnst skemmtilegt að geta rannsakað mál svona beint,“ segir Íris en hún hvetur alla sem gætu aðstoðað við rannsókn málsins til að hafa samband í gegnum netfangið iris.andradottir@mastiff.no.
Erlend sakamál Noregur Lögreglumál Svíþjóð Ljósmyndun Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Innlent Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fleiri fréttir Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Sjá meira